Að margra mati er þetta ömurlega stríð háð til þess að frelsa íraska borgara, og margir ykkar trúa því, en forgangsröð banamanna sínir að það sé eitthvað meira á bakvið þetta allt saman.

Ég er að meina, að ef að þeir ætla að gera heiminn að örugari stað fyrir alla, ættu þeir að byrja á N-Kóreu.
“Kommúnistastjórnin” þar hefur látið fólk þjást frá því að landið var stofnað eftir seinni heimsstyrjöldina, háð stríð og haldið uppi daglegum hótunum um KJARNORKUSTRÍÐ.

Það er jafnvíst, og að Hussein á ekki kjarnorkuvopn að Kim Jong Il eigi þau.
Auk þess er talið að hann eigi langdrægar flaugar sem drýfa heimshorna á milli.

Kim Jong Il er margfallt verri en Hussein, hann lætur myrða fólk af engri ástæðu á hverjum degi til að sýna mikilfengleika sinn.
Öll hjálpargögn sem eru send til N-Kóreu eru notuð til að fæða herinn hans.
Á meðan er fólkið hans úti allan daginn að tína rætur til að borða. Það er nokkurnveginn staðreynd að Kim sé verri en Hussein, hann er með stærri her, betri vopn og er nógu geðveikur, til að hefja stríð útaf engu.

Ef að bandamenn séu bara hræddir við hann, þá ættu þeir ekki að vera auglýsa frelsisstríð þarsem allir eiga að vera jafnir, ef þeir ætla síðan bara að frelsa nokkur svæði !!!!!!!!!!!

Ég vil bæta við að það er engin olía í N-kóreu……….

MesserSchmitt
“Öreigar allra landa sameinist !!!!!!!”