Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Dagur í lífi Dóru

í Smásögur fyrir 22 árum, 5 mánuðum
hehe… sniðug saga!

Re: Shine on you crazy diamond

í Gullöldin fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Einmitt… og titillinn er tilvitnun í Syd Barrett “Shine on you crazy diamond” …m.ö.o… “vonandi nærðu þér kallinn minn”

Re: Linking park

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég get nú ekki séð að þetta sé rísandi hljómsveit… þeir byrjuðu á toppnum og eru strax á niðurleið. Ekki mikið varið í þetta band!

Re: Airwaves 2003

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Mugison átti hátíðina!!! aðrir sem stóðu uppúr voru; The Kills, Dr. Spock, Eivör Pálsdóttir og Trabant… Album Leaf stóð sig líka vel

Re: Death - Individual Thought Patterns

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þessi grein er alveg frábær! Þetta er eina plata Death sem mér hefur ekki enn tekist að finna og þér tókst að kynda all verulega undir mér með þessari grein… ég VERÐ að eignast þessa plötu!!!

Re: Jimi Hendrix 61 árs!

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
hmmm… var hann ekki 27?

Re: Death - Human

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Góð grein en….. Þetta er að mínu mati tímamótameistaraverk sem á fullt hús skilið… það er hreinlega ekki hægt að ætlast til meiru af hljómsveit en það sem Death leggja fram hér! Plata sem inniheldur lögin ‘Together as one’, ‘Suicide machine’, ‘Lack of comprehension’ og ‘Flattening of emotions’ verður bara að teljast 5 stjörnu plata! :) Trommuleikurinn er óviðjafnanlegur, hvað varðar hraða og nákvæmni og lagasmíðar Schuldiner gjörsamlega sjálfstæðar… einnig finnst mér söngurinn sá...

Re: Clifford Lee Burton in Memorial

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Snillingur! RIP

Re: Lars Ulrich

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég vil ekki vera með leiðindi en mér finnst ég alltaf vera að lesa þessa sömu sögu og aldrei kemur neitt nýtt fram…

Re: Green Day

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Dookie er eina góða Green Day platan að mínu mati… hitt er allt langt undir meðalmennskunni. Góð grein samt!

Re: Death - Leprosy

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Á ekki að skrifa um ‘Symbolic’ og ‘The sound of perseverance’ ?

Re: Nirvana

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Tvö orð: Copy/Paste

Re: Spurningarkeppnin

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Frábært!!!

Re: Clash

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
The Clash er frábær PÖNK hljómsveit

Re: Death - Spiritual Healing

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég er nokkuð sammála þessum dómi en samt er þetta mjög mikilvæg plata í þróun Death. Schuldiner er hér að gera tilraunir og allveg við það að fullkomna sinn stíl hvað varðar uppbyggingu laga o.fl. …því miður eru lögin bara ekki hans bestu en hugmyndaflæðið er til staðar og gítarleikur James Murphy gerir góða hluti fyrir plötuna. Trommuleikur Bill Andrews er aftur á móti afleitur og dregur hana plötuna aftur niður. ‘Alterning the future’ er að mínu mati besta lag plötunnar og mjög vel...

Re: Death - Leprosy

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Þetta er góð plata en hefur þó aldrei verið í uppáhaldi hjá mér, því hún hreinlega fellur bara í skuggann á seinni plötum Death, en ef maður miðar við aðrar death metal sveitir frá þessum tíma, þá á þessi plata ekkert annað en fullt hús skilið! Death voru strax farnir að teygja línuna og ætluðu sér greinilega að vera leiðtogar ekki fylgjendur. ‘Pull the plug’ og ‘Open casket’ standa, eins og þú segir, framar öðrum lögum á þessari plötu! Fín grein en þú mættir skrifa aðeins meira um plötuna!

Re: Bestu söngvarar gullaldarinnar?

í Gullöldin fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Tja… mér dettur helst í hug… : David Bowie John Lennon Ronnie James Dio Nick Drake Tom Waits Að sjálfsögðu uppáhalds, ekki endilega bestir.

Re: Kiss

í Rokk fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Sko… heitar KISS umræður… :) Frábær hljómsveit!!! Hotter Than Hell er ein skemmtilegasta Rock n´ roll plata sem ég hef heyrt! Góð grein!

Re: Death - Scream Bloody Gore

í Metall fyrir 22 árum, 6 mánuðum
YEAH!!! Löngu kominn tími á grein um Death!!! Þessi plata er kannski klassík í þessu “fyrsta stigs” dauðarokki en kemst þó hvergi nálægt því sem fylgdi… Schuldiner fór fram með hverri plötu sem lagasmiður, hljóðfæraleikari og útsetjari! Góð grein! vonandi fáum við fleiri

Re: Mogwai - Ten Rapid

í Rokk fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Frábært að sjá grein um Mogwai þó ég hafi nú ekki heyrt þessa plötu og geti því ekki kommentað mikið á þetta… en þetta var áhugaverð lesning og góð grein! …og já, mjög góð sveit!

Re: Nirvana (ofmetin-ég veit, látið mig í friði)

í Rokk fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Raggi minn… Love Buzz kom út árið 1988 og var fyrsta útgáfa Nirvana …. DGC Rarities Vol. 1 1994 The Beavis and Butt-head Experience 1993 No Alternative 1993 Eight/Fourteen Songs for Greg Sage and the Wipers 1992 Concrete Corner Hard Rockin' Head Bangin' Sampler 1991 Kill Rock Stars 1991 The Grunge Years 1991 Hard To Believe: A Kiss Compilation 1990 Heaven And Hell: A Tribute To The Velvet Underground Vol. 1 1990 Teriyaki Asthma 1989 Silver 1991 Nirvana 1990 Geta því ekki hafa komið á undan...

Re: Sepultura

í Metall fyrir 22 árum, 6 mánuðum
“Fjórða plata þeirra, sem heitir Sepultura…” ha? aldrei heyrt um þessa plötu! Góð grein en ég er ósammála mörgu, t.a.m. finnst mér Nation skelfileg plata og fyrsta Soulfly platan var ekkert alslæm þrátt fyrir að ná varla upp fyrir meðalmennskuna.

Re: Nirvana (ofmetin-ég veit, látið mig í friði)

í Rokk fyrir 22 árum, 6 mánuðum
14 smáskífur áður en Bleach kom út??? held nú ekki… aðeins ein smáskífa og það var Love Buzz, endilega taktu þér tíma og teldu upp þessar 14 smáskífur!!! …Svo er ég 100% viss um að ég hafi lesið þessa grein áður einmitt hér á huga!

Re: Saga King Crimson 6.hl. - Lark´s Tounges in Aspic

í Rokk fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Ég á ekki nógu sterk lýsingarorð til að lýsa hrifningu minni á þessari plötu, hún er ein sú allra besta sem ég hef á ævinni heyrt!!! Greinin er mjög góð! …hins vegar verð ég að segja að mér finnst það heldur skítt af þér að leyfa Barret ekki að klára það sem hann byrjaði á !!! … nema þú hafir fengið leyfi frá honum og ef svo er biðst ég afsökunar.

Re: Pink Floyd

í Gullöldin fyrir 22 árum, 6 mánuðum
Hefði viljað sjá a.m.k. minnst á allar plöturnar þeirra en engu að síður mjög góð grein! Stórkostleg hljómsveit!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok