Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Noise

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Mjög góð grein… Getur einhver sagt mér af hverju Ragnar trommi inn á plötuna? Er þessi Hálfdán ekki ennþá trommarinn þeirra?

Re: R.e.m

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Einmitt, The sidewinder sleeps tonight og hann er að segja; ‘Call me when you try to wake her up’ …bara soldið hratt

Re: sóló

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Hotel California … einfaldlega fallegasta gítarsóló sem ég hef heyrt

Re: Nöldur útí Kirk Hammet og dýrkendur hans!!!

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
ibbets… Ef þú hlustar á No life till leather demoið (þar sem Dave Mustaine er enn í bandinu) þá heyrirðu að sólóin voru langflest tilbúin fyrir Kirk þegar hann gekk í sveitina… auk þess þá hafði Kirk samasem engan tíma til að útfæra einhver sóló þar sem hann kom inn í Metallica í miðjum upptökum á Kill 'em All.

Re: The Mars Volta

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Meistaraverk!!! ..svo einfalt er það!

Re: Sigur Rós van....

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Frábært! Til hamingju Sigur Rós!

Re: Moody Blues

í Gullöldin fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Jamm, Moody Blues voru góðir… þetta er einmitt snilldin við prog-rokkið þessar óútreiknanlegu stefnur sem lögin taka :)

Re: Vantar info

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Er þetta ekki með Ian Brown (ex-Stone Roses)… ég held það en get ekki hjálpað þér með nafnið á laginu

Re: hvaða lag?

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
N.I.B. með Black Sabbath :)

Re: Guns N' Roses - Chinese democrasy

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Veistu… ég efast um að hann komi nokkurn tíma út :/

Re: Death - Sound of Perseverance

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Góð grein! Þetta er bara svo mikið meistaraverk að mig langar stundum til að grenja…. snilligáfa þessa manns, Chuck Schuldiner, var ótakmörkuð og þessi plata fullkomnaði glæstan feril sem tók enda allt of snemma! Trommuleikurinn á þessari plötu er stórkostlegur og að mínu mati brautryðjendaverk hjá Christy… ótrúlega djassaður (sbr inn og út taktar) en þó fáránlega kraftmikill. Takk ibbets fyrir frábæra greinaröð… ég er sammála þér og tactik um að Schuldiner sé með merkustu tónsmiðum síðustu aldar!

Re: nótt...

í Ljóð fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Mér finnst þetta kúl!

Re: Fyrsta Súpergrúppan

í Gullöldin fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Frábær grein með góðan boðskap!

Re: Noise - Pretty Ugly

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Naunau bara heilt lag skýrt í höfuðið á mér! ;) Til hamingju Noisarar með nýju plötuna og gangi ykkur vel!

Re: Rush

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Því hef ég einmitt alltaf haldið sjálfur fram! :)

Re: Rush

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Frábær grein, fróðleg og skemmtileg… Löngu kominn tími á að heiðra þetta frábæra band hér á huga! Synd að Rush séu ekki þekktari en þeir eru því þeir eru svo sannarlega með áhrifamestu hljómsveitum heims í teknískri og progressívri tónlist… Queensryche, Dream Theater, Tool o.fl. eiga Rush lífið að þakka… Neil Peart er einn af mínum uppáhalds trommurum!!! “What about the voice of Geddy Lee How did it get so high And I wonder if he speaks like an ordinary guy… …I know him and he does!” -Pavement :)

Re: Manowar

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég hef verslað nokkra Manowar diska í gegnum 2001 á Hverfisgötu… svo sjást þeir við og við í Geisladiskabúð Valda líka

Re: No Prayer For The Dying

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Slakasta plata Iron Maiden að undanskyldum Blaze plötunum.

Re: Píkupopp vs Popp

í Popptónlist fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ágætis pæling hjá þér HrannarM… ég hefði mjög gaman að því að lesa metnaðarfullar greinar um t.d. Duran Duran, U2, Tori Amos, Beach Boys, Michael Jackson, Abba eða góðar íslenskar poppsveitir eins og Ný Dönsk og Todmobile … aftur á móti ætla ég ekkert að berjast á móti greinum um markaðspoppið heldur bara leyfa fólki að vaxa uppúr því í friði…

Re: Black Flag - In My Head

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Góð grein …á eftir að tékka á þessu…

Re: Seventh Son Of A Seventh Son

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Tja… þú verður allaveganna ekki sakaður um leti næstu misserin invader minn …hehe :) Þér hefur farið gífurlega fram síðan þú byrjaðir á þessu og þetta er besta greinin þín til þessa, sem er mjög viðeigandi þar sem þetta er líka að mínu mati besta Maiden platan. Titillagið (Seventh son of a seventh son) er besta lag Iron Maiden PUNKTUR! :) Mér finnst þetta lag bara svo skelfilega vel heppnað …textinn (eins og þú segir) segir söguna af þessu barni sem fæðist með yfirnáttúrulega hæfileika og...

Re: Fjórir góðir

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Góð grein! Sennilega skemmtilegasta mainstream metal band síðustu ára!

Re: Somewhere In Time

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Góð grein! Mér hefur alltaf fundist þetta vera mjög vanmetin plata… þó flestir Maiden aðdáendur fíli hana fær hún nær undantekningalaust afleita dóma hjá flestum miðlum. Þetta var fysta Maiden platan sem ég hlustaði á og ber því miklar tilfinningar til hennar! Það má geta þess að þetta er fyrsta platan þar sem drengirnir nota hljómborð og kemur það sérstaklega vel út í Alexander the great. Sea of madness hefur oftar en einu sinni verið kosið versta Iron Maiden lagið… ég er reyndar ósammála...

Re: Soundgarden?

í Rokk fyrir 22 árum, 5 mánuðum
A-sides heitir safnplatan þeirra …kom út 1997 Hún spannar allan ferilinn, fyrstu lögin eru af gömlu sub-pop smáskífunum, svo allir smellirnir þegar líður á plötuna og endar svo á áður óútgefnu lagi. Annars mundi ég ekkert vera feiminn við að skella mér á Superunknown eða Down on the upside til að byrja með og Batmotorfinger seinna.

Re: Death - Symbolic

í Metall fyrir 22 árum, 5 mánuðum
Ég er ekki sáttur við þennan dóm og eiginlega mjög ósammála! Á þessari plötu eru einhver af allra bestu lögum Death að mínu mati (Symbolic, Empty words, Crystal mountain, Perennial quest) …Ég hef reyndar ekki hlustað á ‘Individual…. ’ í heild sinni en get þó með góðri samvisku sagt að þróunin frá Human er töluverð og til betri vegar á ýmsum sviðum, t.a.m er þessi MUN melódískari og enn meira lagt í lagasmíðar, sbr örar kaflaskiptingar, tempóbreytingar, skrítnar tímasetningar og flóknar...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok