Ég er alveg sammála þér varðandi stúdentsprófið, en dýrkunin á því er arfleið frá fyrri tíð, þegar það var lykill að mörgum störfum. Í dag er verknám að mörgu leiti betri kostur, þú kemur fyrr út á vinnumarkaðinn og ert með hraðari eignamyndun, heldur en háskólagengið fólk. Auk þess er hægt að ljúka stúdentsprófi samhliða verknámi, og þá ertu orðin mjög eftirsótt/ur bæði í framhaldsnám og á vinnumarkaðnum.