Skálarnir í húsadala eru í eigu Austurleiðar en annars er mjög fínt að vera þar.
Ég held að skálinn í Langdal sé á vegum FFÍ.
en þetta eru ekki einu staðirnir til að tjalda á það eru ótal gil og reitir til að tjalda á, málið er bara að finna sér stað sem manni líkar vel við. Leitið og þér munið finna segir máltækið og uppáhald eins getur verið ógeð annars svo maður sé svolítið skáldlegur.

-Roses are red, violets are blue. I'm schitzofrenic, so am I-
Slyppugil. Það er lang flottast að vera þar, reyndar ekki mjög stórt sem gerir það að verkum að það eru ekki mjög mörg tjaldstæðði þarna en þetta er snilld. Það er næsta gil við hliðina á Langadal og ekki nema svona 10 mín að labba á milli.

If it aint broken, dont fix it
Ég hreinlega gleymdi Slyppugili. Ég hef ekki enn sofið þar en það er frábær staður. Ég hef alltaf verið í Langadal hingað til, prófa kannski Slyppugil í sumar.
Þetta með Goðaland og Bása. Þórsmörk nær á milli Krossár og ég held Markarfljóts. Goðaland nær hinsvegar frá Krossá og til suðurs, veit ekki hve langt, kannski að Eyjafjallajökli.
Smá landafræði. Þórsmörk afmarkast af Krossá, Markarfljóti, Þröngá og Mýrdalsjökli. Goðaland nær svo frá Krosssá suður að Eyjafjallajökli. Reyndar er ég ekki viss um hvar mörkin eru fyrir ofan Hruná. Því þannig var að Fljótshlíðingar áttu afrétt í Þórsmörk, en Eyfellingar í Goðalandi. En ýmis örnefni inn í Hruna benda til bæja í Fljótshlíð og þar með að það tilheyri Þórsmörk
mér finnst skemmtilegast svona ef maður er bara að njóta friðsældar að vera í strákagili eða littlaenda.. svo er auðvitað algert “cult” að sofa i stóraskógi.

[.Love.]Duce sticks and stones will brake my bones but words will never hurt me !
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..