Ég veit að alkóhólismi er sjúkdómur, ég hef verið í alanon, ég er ekki að banna honum að hitta strákinn, hann þorir sjálfur ekki að hafa samband því hann er búinn að skíta svo uppá bak! Svo er ekkert sérstaklega gott fyrir barn að geta ekki treyst á pabba sinn, að hann hverfi svo mánuðum skiptir, gleymir afmælisdögum og dúkkar svo bara upp allt í einu!!? Ekki beint góð fyrirmynd! En takk samt fyrir allar ráðleggingar, ég hafði gott af þeim! sérstaklega það sem GlinGlo skrifaði, takk:)