Justin og Cameron.. Smástrákurinn og popparinn Justin Timeberlake krækti sér í stórleikonuna Cameron Diaz eða hún í hann, á dögunum og nú eru þau víst kærustupar, að því áreiðannlegar fregnir frá útlöndum herma. Justin sem einu sinni var með poppjómfrúnni Britney Spears og fleiri stúlkum, þykir kvennagullið mikið.

Reyndar hafði lengi verið sá orðrómur á sveimi í Hollywood að Justin og Cameron , sem er allmörgum árum eldri (hún er þrítug) væru þar. Það var þó ekki fyrr en nýlega að sögusagnirnar voru staðfestar þegar ljósmyndarar náðu af þeim mynd.
Þannig var að Justin hafði komið í skyndiheimsókn til Cameron og átt með henni huggulega stund. Þegar kveðjustundin rann upp og þau voru komin út fyrir hús á þau slíkur og þvílíkur kossamóður að annað eins hefur varla sést í herranstíð.(það eru örugglega ýkjur)
Þau gleymdu sér bæði stað og stund , að ekki sé talað um ljósmyndara og útsendra æsifréttablaðana.

Upplýsingar fékk ég í Helgabalði DV..
:D