Stone Temple Pilots hættir eða ekki??!
STP… eru þeir hættir eða ekki??!! vinir mínir sögðu mér að þeir væru hættir vegna ómögulegs lífsháttar. þ.e.a.s. komnir út í dópið og vitleysu, en á heimasíðu þeirra www.stonetemplepilots.com eru audio message frá 4.janúar 02 og 8.janúar 02 frá söngvara sveitarinnar þar sem hann segir að stefna hljómsveitarinnar sé sú að gera myndband við eitthvað lag (man ekki hvaða lag). svo er líka frétt á síðunni um það að búið sé að bóka þá til að spila á Vetrarólympíuleikunum í Salt Lake City, sem byrjar 8.feb og endar 24.feb, en ekki er tekið fram hvenær STP spila, en Dave Matthews Band spilar 9.feb. Svo að þið sem vitið meira um þetta en ég, endilega segið mér hvort þeir séu hættir eða ekki.

kveðja, gjons