Enn á ný berast fréttir frá Palestínu um stórfelld hermdarverk Ísraelshers gagnvart Palestínumönnum. Heimili á annað hundrað fjölskyldna voru lögð í rúst í fyrradag, saklausir borgarar reknir út á götu og jarðýtum beitt á heimili þeirra og eigur. Allt lagt í rúst. Eftir standa fjölskyldurnar án húsnæðis, án búslóðar, eignalausar og allslausar á götunni. Þannig hrekur her Ísraelsmanna hverja fjölskyldu á fætur annarri út í örvæntingu. Og þannig hefur þessi sami her hrakið þúsundir óbreyttra Palestínumanna út í óvissuna á síðustu árum og áratugum.

Því er haldið fram að hér sé um hernarðaraðgerð að ræða. En hernaður Ísraelsstjórnar beinist ekki gegn nágrannaþjóð eða óvinveittu ríki. Palestínumenn eiga sér ekkert ríki og ekkert land og engan her. Palestínumenn eru fórnarlömb útþenslustefnu og kúgunar Ísraelsmanna gagnvart þjóð sem býr í sama landi. Þjóð sem nú er lokuð inni á afmörkuðum landsvæðum innan landamæra Ísraels. Svæðum sem umkringd eru hermönnum og lokuð af með víggirðingum. Þar sem íbúarnir eiga sífellt yfir höfði sér árásir á heimili sín og þjónustustofnanir eins og skóla og sjúkrahús. Allt undir stjórn herskárra Ísraelsmanna, sem hafa þá yfirlýstu stefnu að losna við þetta fólk af yfirráðasvæði Ísraelsríkis. Kannast einhver við svipaða lýsingu frá árum seinni heimsstyrjaldarinnar? Getur kaldhæðni sögunnar orðið öllu meiri?

Hvað finnst ykkur? Eru ísraelsmenn (af öllum þjóðum) orðnir nasistar?