Mér finnst nú The Vines bara hin ágætasta hljómsveit. Ég á plötuna þeirra, Highly Evolved, og finnst hún bara fín. Það er varla hægt að segja að Vines séu það frumlegasta í tónlist í dag, það er svo sem búið að gera þetta margoft áður - en ef uppskriftin er góð má alltaf baka nýja köku með henni. Það sem ég skil nú samt ekki hvað það er alltaf verið að líkja þeim við Nirvana, - jú það heyrast kannski einhver áhrif frá þeim, en mér finnst ég heyra alveg jafnmikil áhrif frá td Beach Boys,...