Ég slysaðist víst til að stilla á popptíví meðan þessi leiðindaþáttur 70 mínútur var á dagskrá. Allavega þá sá ég s.s. einhverja sona falda myndavél sem var á dagskrá einmitt þá stundina sem gekk út á það að fyndni gaurinn fékk lánaðann síma frá einhverjum greyjum og hljóp í burtu eftir að hann fékk hann í hendurnar. Er það bara ég eða er þetta farið að ganga aðeins of langt, ég tek nú flestu með jafnaðargeði og læt fæst fara í taugarnar á mér en þetta fannst mér bara aðeins of mikið. Ég hló þegar fóstbræður gerðu sketcha um gaura sem lömdu eiginkonurnar sínar og skelli uppúr við svæsnustu ungbarnamannátsbrandara en það að taka síma af einhverju 14 ára stelpugreyi er einum of mikið að mínu mati. Djöfull hefði ég hlegið ef einhver hefði fellt gaurinn á hlaupunum og brotið á honum nefið. Hvernig ætli popptívígaurar hefðu brugðist við því? Lögsókn ?? Ég bara spyr.