Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Önnur grein gædd tilgangi

í Rokk fyrir 23 árum, 5 mánuðum
ég er 23, það er nú minnsta málið að fjármagna þetta - maður eyðir bara minni pening í annað, ég er td algerlega laus við það að nenna að elta tískustrauma, borða aldrei skyndibitamat, á ekki bíl. þú mátt alveg eiga þessa sérvisku þína en ég kaupi mér yfirleitt bara vínyl ef um er að ræða útgáfur sem eru ekki fáanlegar á CD eða það er eitthvað sem mig sérstaklega langar í á vínyl. og svo þegar maður finnur eitthvað ódýrt í kolaportinu eða góða hriðinum sem manni langar að tékka á en tímir...

Re: Önnur grein gædd tilgangi

í Rokk fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Mér finnst hann bara illa unninn, það er auðvitað mjög erfitt að velja 18 lög með Bob Dylan á safnplötu þar sem hann hefur samið þvílíkan fjölda af lögum. Best of kemur í tveim hlutum, sem báðir eru með lögum frá 1962-1999 sem er alltof langur tími - mér finnst til dæmis hreinlega óþægilegt að hlusta á Jokerman á eftir Blowin in the wind, passar engan veginn saman. Betra væri ef annar diskurinn væri með lögum frá 1962-1975 og hinn 1976-1999, það væri mun betra yfirlit yfir tímabilin og mun...

Re: Önnur grein gædd tilgangi

í Rokk fyrir 23 árum, 5 mánuðum
jamm fyrirgefðu, ég mislas. það er eins með post-punkið, ég hef ekki hugmynd um hvað telst til þess (ég er voða lítið fyrir að pæla í skilgreiningum), er td Joy Division postpönk? eða er Birthday Party postpönk? afar ólíkar hljómsveitir, annars var þetta bara kallað nýbylgja (new-wave) á sínum tíma og upp á grínið var tónlist sveita á borð við Sonic Youth kölluð no-wave. jæja, nóg af skilgreiningum (ég fæ bara hroll). Mér finnst nú Can diskurinn ágætur, fín kynning til þess að vita hvað...

Re: Önnur grein gædd tilgangi

í Rokk fyrir 23 árum, 5 mánuðum
og svo leit ég nú yfir listann þinn aftur og sá að það eru nú um 130 titlar sameiginlegir, auk þess sem margt af þessu gamla dóti hef ég einfaldlega látið nægja að fá mér á safnplötum (td rolling stones/bítlana/can/frank zappa/doors/kinks/CCR ofl). þannig að listarnir mætast nú á ýmsum stöðum, bara öðruvísi áherslu

Re: Önnur grein gædd tilgangi

í Rokk fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Tja, ég lifi nú í nútímanum og því hlusta ég aðallega á nýja og nýlega tónlist - tek meira svona ákveðin tímabil eða tónlistarmenn fyrir af eldra dóti. Ég var mikill Pulp aðdáendi fyrir þónokkrum árum síðan og keypti þá allt með þeim, ástæðan fyrir að This Is Hardcore er þrisvar er að þetta eru tvær mismunandi smáskífur og svo platan - í skráningunni hjá mér er ég með sér glugga fyrir format (td. síngull, ep, plata) sem ég setti ekki hér með. Ég hef lítið sokkið mér niður í Kraut-rokkið, og...

Re: Önnur grein gædd tilgangi

í Rokk fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Mér datt bara í hug að setja inn listann minn hér svon til skemmtunar, hann er reyndar ekki alveg tilbúinn - en svona næstum. ég lét raða honum eftir ártali líkt og í greininni að ofan, diskarnir koma fyrst og svo er vínyllinn á sér lista. ég hef ekki haft fyrir því ennþá að gefa einkunn, en það getur verið að ég taki mig til einhverntímann og hlusti á allt og dæmi. ps. þetta eru allt original diskar og plötur. Geisladiskar 1962: Bob Dylan - Bob Dylan Bob Dylan - The Freewheelin' Bob Dylan...

Re: Önnur grein gædd tilgangi

í Rokk fyrir 23 árum, 5 mánuðum
ég er mikill VU áhugamaður og fanatíker og þori veðja hægri eistanu upp á það að White Light/White Heat hafi komið út 1968, hún var reyndar tekin upp árið 1967 - en VU&Nico var td tekin upp á fyrri hluta ársins 1966 en kom síðan út 1967, enda voru þau svona frekar furðuleg hljómsveit á þess tíma mælikvarða og því kannski erfitt að sannfæra útgefendur um að gefa skífurnar út sem útskýrir afhverju plöturnar þeirra komu yfirleitt út löngu eftir að þeir voru tilbúnar. Annars er oft líka erfitt...

Re: Önnur grein gædd tilgangi

í Rokk fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Þetta er alveg sæmilegt safn, næstum því jafn glæsilegt og mitt - amk eigum við þónokkrar plötur sameiginlegar þótt ég sé nú ekki alltaf sammála einkununum sem þú gefur. Ég tók reyndar eftir því að ártölin eru nú ekki alltaf rétt, td kom White Light/White Heat með Velvet Underground út árið 1968 og And then nothing turned itself inside out með Yo La Tengo kom út árið 2000. Einnig væri gaman að vita hvort þetta séu allt orginalar, þ.e.a.s. ekki brenndir diskar. Ég sjálfur skrái aðeins diska...

Re: Bob Dylan mistúlkun?

í Rokk fyrir 23 árum, 5 mánuðum
hvað græðiru á því? væri ekki nær að skera fingur af honum?

Re: Jim Jarmusch

í Kvikmyndir fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Night On Earth er frábær mynd, Down by Law og Mistery Train alveg ágætar en Stranger Than Paradise fannst mér aftur á móti ansi hæg - var máski ekki í stuði fyrir svoleiðis mynd þegar ég sá hana. Hef ekki enn séð þessar tvær nýjustu myndir hans.

Re: Bob Dylan mistúlkun?

í Rokk fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Í fyrsta lagi hefur mér alltaf fundist Páll Rós leiðinlegur söngvari og var aldrei hrifinn af JBJ, en þetta endurvinnslukjaftæði hans er hreint út sagt ógeðslegt. Hann safnar saman nokkrum slögurum sem eru búnir að margsanna sig í vinsælum, hóar saman nokkrum session spilurum og tekur upp á örfáum dögum án þess að einu sinni útsetja lögin upp á nýtt - eins og vaninn er þegar listamenn eru að túlka lög annarra. þetta er hreint og bein karókí! Svo glepst fólk af þessu ár eftir ár sem er mér...

Re: DrukQs - besti diskur í geimi

í Raftónlist fyrir 23 árum, 5 mánuðum
Ég heyrði nú þessa sögu fyrir mörgum árum og þá að það hefði verið lag með Primal Scream (sem n.b. er ekki hræðileg hljómsveit) og að sögn voru þeir hæstánægðir með “remixið”. Það virðast greinilega vera það skiptar skoðanir um það hvaða hljómsveit þetta var að kannski er sagan alls ekki sönn, eða þá að þetta hafi bara alltaf verið að koma fyrir hjá kallinum.

Re: DrukQs - besti diskur í geimi

í Raftónlist fyrir 23 árum, 6 mánuðum
jamm Avril 14th er algjör snilld. vinur minn sem vinnur m.a. við að búa til safndiska með klassíkri tónlist fyrir Universal skellti þessu lagi einmitt á disk með gömlum lummum - þannig að Aphexinn nær sko langt út fyrir raftónlistina

Re: DrukQs - besti diskur í geimi

í Raftónlist fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Mér finnst píanólögin á Drukqs frábær en ég verð bara að segja að ég hef aldrei komist inn í afganginn af honum almennilega. kannski út af því að ég sanka ansi mikið af dóti að mér og hef ekki tíma til að liggja yfir öllu

Re: Flokkun á tónlist

í Rokk fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Afhverju í ósköpunum þarf að vera að flokka tónlist, ég er algjörlega á móti því! Það er hvort sem er ekki hægt að búa til flokkunarkerfi sem hægt væri að sætta sig við og alltof margir lenda hvort sem er alltaf einhverstaðar inn á milli flokka og þá þarf endalaust að búa til nýja flokka… hættum að flokka tónlist og byrjum að hlusta á hana í staðinn

Re: Revolution 9

í Rokk fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Lang skársta bítlalagið, í raun eitt af fáum sem er hlustanlegt á.

Re: klapp á bakið= 7000 kall takk

í Rokk fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Þessi verðlaun hafa nú alltaf verið hálfbjánaleg en aldrei eins slæm og í fyrra og sama fyrirkomulag er víst núna. Verðlaunin byrjuðu sem popptónlistarverðlaun og er hálfasnalegt að fara blanda öllu hinu inn í sem hefur orðið til þess að margir hafa hreinlega misst áhugann á þessu, eins og sást á hátíðinni í fyrra þar sem salurinn var meira en hálftómur. Ég veit reyndar ekkert um þennan 7000 kall sem þú talar um, getur einhver útskýrt það? þurfa tónlistarmennirnir að vera búnir að borga í...

Re: Brian Eno

í Rokk fyrir 23 árum, 6 mánuðum
ef mig misminnir ekki þá kom Love Is The Drug út á Siren plötunni með Roxy Music og þá var Brian Eno hættur í sveitinni. mér fannst bara rétt að leiðrétta það. annars á eno mjög fínan feril þótt hann hafi nú að mínu mati girt niður fyrir sig með þessu samstarfi við u2

Re: Óla Palla dýrkun

í Rokk fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Óli Palli er að vinna á “útvarpsstöð allra landsmanna” þeas Rás 2 og ætti því ekki að skíta yfir þá tónlist sem hann fílar ekki sjálfur. Ég hef heyrt hann beinlínis skamma hlustenda fyrir að biðja um óskalag sem með hljómsveit sem Óli Palli fílaði ekki og sagði aumingja hlustandanum að í guðanna bænum að fara að hlusta á einhverja aðra hljómsveit í staðinn. svona á fólk ekki að haga sér þótt það viti mikið um tónlist.

Re: Ash

í Rokk fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Var Trailer ekki bara svona mini-LP, hélt það alltaf - enda var 1977 kynnt sem fyrsta breiðskífan þegar hún kom út

Re: Óla Palla dýrkun

í Rokk fyrir 23 árum, 6 mánuðum
iss. óli palli er hrikalegur nörd og þótt mér finnist nú ágætt að hlusta á hann í útvarpinu myndi ég aldrei vilja umgangast hann. svo er hann bara eins og flestir aðrir, heldur að það sem hann fílar mest sé þar af leiðandi besta músíkin

Re: kazaa

í Popptónlist fyrir 23 árum, 6 mánuðum
hvaða linkur? setti engan link inn

Re: kazaa

í Popptónlist fyrir 23 árum, 6 mánuðum
þú þarft að breyta mp3 í wav. hægt er að ná í converter hér og þar á netinu

Re: Uppáhalds tónlist ???? :), Hljóðfæri ??

í Rokk fyrir 23 árum, 6 mánuðum
ég er nú ekkert að læra á hljóðfæri og hef aldrei gert, en kann nú sitt lítið af hverju á hin ýmsu hljóðfæri. Það er nú alltaf mikil umferð um geislaspilarana mína, en auðvitað rata sumir oftar en aðrir þangað. Reglulegir gestir eru Stereolab, Nick Cave, Tom Waits, The Residents, Yo La Tengo, The Birthday Party, Bright Eyes, Pavement, Low, Sonic Youth ofl

Re: Hvert fóru jólalögin?!

í Hátíðir fyrir 23 árum, 6 mánuðum
Vertu bara feginn, jólalög eru það allraleiðinlegasta sem til er.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok