Jæja, ég hef verið að fylgjast með þessari umræðu um nokkurt skeið og þessvegna vil ég koma með pínulítið innlegg í hana. Eitt af einkennum þeirrar umræðu sem ég hef fylgst með hérna (og allstaðar, ef út í þá sálma er farið) er sú að sífellt er verið að rífast um sömu efnin aftur og aftur. “Hverjum er þetta að kenna?” “Hver er vondi kallinn?” “Ariel Sharon er harðstjóri!” “Yasser Arafat er hryðjuverkamaður!” o.s.frv. Til þess að víkka út þessa umræðu, þótt ekki sé nema smá, þá vil ég koma...