Hagkerfi þar sem dreifing auðlinda, afurða og þjónustu ræðst af framboði og eftirspurn. Aðilar ákvarða sín á milli hvernig þeir skiptast á vörum sem þeir eiga. Því má segja að kapítalismi sé í grundvallaratriðum vöruskiptakerfi, þar sem allir hlutir hafa einhverja eigendur sem hafa stjórnunar- og afnotarétt af hlutnum, og hafa svo rétt til þess að færa þennan stjórnunar- og afnotarétt til annara aðila, hvort sem um er að ræða einstaklinga, félög eða ríki. Með öðrum orðum má því segja að...