Þessi hugmynd sem þú talar um hér, að refsa einhverjum til að vera öðrum víti til varnaðar, er ekki ný af nálinni, heldur hefur verið við lýði síðan skipulagðar kúganir hófust. Frá alda öðli hafa alþýðumenn, uppreisnarmenn, verkafólk, þrælar, glæpamenn og aðrir sem einhverra hluta vegna eru lægra settir í þjóðfélaginu verið beittir þessum refsiaðferðum af hálfu aðalsmanna, presta, landdrottnara, kapítalista, iðnaðarjöfra, stjórnmálamanna, lögreglu og annara fulltrúa ríkjandi ráðastéttar....