RaiD er eitt elsta fyrirtækið í EVE heiminum, og í gegnum tíðina hafa margir skráð sig á meðlimaskrá hjá okkur. Núna nálgast útgáfudagurinn óðfluga, og þar af leiðandi þarf starfsmannahald að vita hvaða meðlimir eru enn aktívir.

Ef þið eruð meðlimir RaiD Enterprises, en hafið ekki verið aktívir í einhvern tíma, þá skuluð þið framkvæma eftirfarandi þrep:

Sendið tölvupóst á requiem@vortex.is með titlinum "Staðfesting: [Callsign]", þar sem [Callsign] er það heiti sem þið kallið ykkur almennt. (Dæmi: segjum sem svo að gaur kalli sig Dúddi, þá er fyrirsögning “Staðfesting: Dúddi”.)

Í bréfinu skuluð þið birta eftirfarandi upplýsingar:

1. Fullt nafn
2. Tölvupóstfang
3. Fæðingardagur
4. Sími (GSM (notum fyrir SMS-tilkynningar))
5. Sími (Heima (ekki nauðsynlegt))

Ef þið eruð þáttakendur í betaprófunum skuluð þið einnig senda inn nöfn og kynþætti persóna ykkar.

Vegna endurskipulagningar á deildum innan RaiD þá hefur verið endurraðað í stöður. Númerið eftirfarandi hlutverk frá 1 upp í 8, þar sem 1 er það hlutverk sem á best við ykkur:

Framleiðsla
Námugröftur
Fjármál
Geimkönnun
Orrustur
Fylgdarþjónusta (escorting)
Vöruflutningar
Njósnir

Þegar þið hafið sent þetta bréf þá skuluð þið fara inn á RaiD korkana (http://www.raid-enterprises.com/forums/) og búa til notendanafn þar. Notið sama nafn og þið hafið sem callsign.

Þegar þessu er lokið verður farið yfir upplýsingarnar frá ykkur og þið sett í stöður í samræmi við þær.

Þakka ykkur fyrir.

Atli Freyr Friðbjörnsson
Chief of Staff
RaiD Enterprises<br><br>- Requiem