Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Tónlist

í Tilveran fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Í Sádí-Arabíu er ólöglegt að syngja á opinberum stöðum, frekar hardkor.

Re: Ég er orðin þreytt á ykkur!

í Rómantík fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Veistu, strákar og stelpur eru ekki svo ólík þegar kemur að samböndum. Stundum hugsa bæði strákar og stelpur of mikið um kynlíf.

Re: Svarið þessu takk

í Tilveran fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Einfalt… Nei Já Annars þóttist ég vera að fermast í hreinskilni, svo að þetta sýnir held ég ekkert betur en það að börn eru ekki tilbúin til að fermast 14 ára gömul.

Re: Ef Guð er dauður er þá allt leyfilegt ?

í Heimspeki fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Hehe, engar áhyggjur, ég er í besta falli áhugamaður um jaðareðlisfræði eins og skammtafræði. Samt ákaflega áhugavert fag.

Re: Ef Guð er dauður er þá allt leyfilegt ?

í Heimspeki fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Reyndar gerir skammtafræðin ráð fyrir mjög óstöðugu rúmi þegar komið er niður á mjög smáan skala, svo hræringarnar eru fyrir hendi. Þegar þú hugsar um hvernig tvær eindir geta orðið til úr engu má gefa eftirfarandi fullyrðingu: 1+(-1)=0 Ef þú gerir ráð fyrir að andeindin sé andhverfa eindarinnar er þetta alls ekki svo erfitt að skilja.

Re: Ef Guð er dauður er þá allt leyfilegt ?

í Heimspeki fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Að sjálfsögðu geturðu ekki notað það sem frumsendu í rökræðum við trúleysingja að Guð hafi sent son sinn til jarðarinnar af þeirri einföldu ástæðu að trúleysinginn þarf ekki endilega að trúa þeirri frumsendu. Í annan stað sé ég ekki hvers vegna sonur Guðs ætti sérstaklega að koma til jarðarinnar til að sanna tilvist Guðs, að því gefnu að hann hafi komið, að sjálfsögðu. Annars skil ég ekki fullkomlega þetta svar hjá þér, það er svolítið ruglingslegt…

Re: Ef Guð er dauður er þá allt leyfilegt ?

í Heimspeki fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þessi póstur er kjaftæði og rugl frá upphafi til enda. Ég sé ekki hvernig þú getur fullyrt að “allt sem við vitum bendi til þess” að einhver yfirnáttúruleg völd hafi skapað tilveruna, það eru gjörsamlega engin vísindaleg rök fyrir því. Það er í sjálfu sér ekkert nema helgirit eins og Biblían sem bendir til þess. Það að hlutir hafi aldrei sprottið úr engu er heldur ekki alveg rétt. Samkvæmt tiltölulega nýjum rannsóknum á sviði skammtafræði og örsmæðavísinda virðist vera að í sífellu verði til...

Re: Ef Guð er dauður er þá allt leyfilegt ?

í Heimspeki fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þetta eru einhver lélegustu rök sem til eru fyrir tilvist Guðs sem skapara. Reyndar eru öll rök fyrir því almennt léleg, þar sem tilvist Guðs frá þeim sjónarhóli er alls ekki rökfræðileg. Öll rökfræði, sem byggir á því sem hægt er að sjá og heyra og þeim ályktunum sem draga má af því, bendir til alls annars en tilvist Guðs. Segjum þá að Guð hafi skapað okkur, og útilokum tilurð okkar úr lífrænum efnasamböndum sem mynduðust í árdaga alheimsins eða jarðarinnar eða einhvern tímann þar á milli,...

Re: Ef Guð er dauður er þá allt leyfilegt ?

í Heimspeki fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Málið er það að allt það sem má kalla nútímagildi og -siðferði í “vestrænu samfélagi” byggir meira og minna á sömu hlutunum, þar sem saga allra vestrænna samfélaga byggir meira og minna á sömu sögunni og þar með þróun siðferðis. Til dæmis þykir almennt rangt að drepa mann hér á Íslandi, svo segja lögin, svo segir almannahugur býst ég við og svo segir Biblían að auki, Guð ef fólk trúir slíku. Hins vegar ef litið er t.d. til margra Miðausturlanda má sjá að slík gildi eru að nokkru leyti...

Re: Lögregla leysir upp samkvæmi

í Deiglan fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Hér var jú líklega eitthvað að eiga sér stað sem dæma má sem ólöglegt. Hins vegar, þá var í sjálfu sér fátt til að stöðva þar sem komið var, snemma morguns seinni dags ferðarinnar, að mér skilst. Það að drekka undir lögaldri er ekki refsivert, og ekki ólöglegt í sjálfu sér, þó ölvun á almannafæri sé almennt ólögleg. Hins vegar má lögregla gera áfengi upptækt frá manneskju sem er undir lögaldri. Þar sem þú spyrð hvort lögreglan ætti að standa á kostnaði við flutninga, þá virðast þeir hafa...

Re: Leikjatölvurnar þrjár....

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég legg til að þú kommentir á réttan póst…

Re: Leikjatölvurnar þrjár....

í Leikjatölvur fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég held samt að þú vanmetir það hvað verðið skiptir miklu máli. Það vill enginn kaupa leikjatölvu á 500-600 dollara eða hvað það nú var á PS3. Hins vegar virðist Wii ætla að verða fjandi ódýr. Það er spennandi að sjá hvort þetta nýja spilunarkerfi gengur upp, því að mig klæjar í lófana til að komast yfir þennan nýja Zelda leik.

Re: Kópavogur

í Tilveran fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Kannski frekar átt að fara í nöldur? Æ, þetta sleppur held ég.

Re: W-M

í Tilveran fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Segðu “W” á hvolfi… og þá kemur út “M” - allir vita þetta.

Re: Helvítis lygarar hjá OgVodafone

í Tilveran fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þegar þú horfir á eitthvert “streaming”, t.d. beina sjónvarpsútsendingu eða bara eitthvert myndband á YouTube, þá ertu að niðurhala án þess að vista á harða diskinn. Reyndar í hvert skipti sem þú opnar vefsíðu, þá gerirðu það, en það er óverulegt.

Re: Íslensk stafsetning

í Tilveran fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þessi hugmynd hefur alltaf reglulega verið lögð til í nokkuð langan tíma. T.d. studdi Jónas Hallgrímsson það að leggja niður y ef ég man rétt. Hins vegar held ég að málfræðimógúlunum þyki of þægilegt að hafa orðin svona tengd upprunanum til þess að breyta því.

Re: Að reykja..

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Það er bara tóm vitleysa að óbeinar reykingar valdi engu heilsutjóni. Dæmin liggja ljós fyrir, t.d. bara Haukur Morthens sem dó úr lungnakrabba eftir að skemmta lengi, að sjálfsögðu í reykfylltu lofti eins og var varla undantekning á þeim tíma. Haukur Morthens var aldrei reykingamaður en dó samt úr lungnakrabba. Dæmin eru að sjálfsögðu miklu fleiri, en engu að síður get ég ekki skilið hvernig rannsóknir geta gefið þá niðurstöðu að óbeinar reykingar valdi engum skaða á heilsu.

Re: Að reykja..

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Reykingar eru miklu gjarnari til að valda fíkn heldur en áfengi. Þú reykir ekkert til lengdar án þess að ánetjast a.m.k. að lokum. Jú, sumir komast í gegnum þó nokkurn tíma af reykingum á djamminu án þess að taka upp pakka-á-dag-reykingar en þó er ótrúlega stórt hlutfall þeirra sem taka upp reykingar að einhverju leyti sem fara út í lengri tíma reykingar. Það eru langflestir sem drekka nokkuð af áfengi yfir ævina án þess nokkurn tímann að ánetjast. Er það enn fasismi að banna nokkuð sem...

Re: Að reykja..

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Mér leiðist að vera með orðhengilshátt… en rólegur á 0,5 grömmum ;) Nikótínmagn í einni sígarettu er svona milli 0,6-1,2 mg eða svo. 0,5 grömm, sem eru 500 mg, í einum skammti mundi duga til að drepa hvern sem er samstundis. Annars ætla ég alls ekki að draga úr orðum þínum. Stundum þarf líka að sýna reykingafólki vissa tillitssemi, ekki endilega þá sem kemur upp í umræðunni um óbeinar reykingar, heldur einfaldlega að viðurkenna að reykingafólk er fólk engu að síður, þrátt fyrir slæman ávana.

Re: Að reykja..

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þetta er ekki spurning um að gefa skít í heilsuna sína. Ég virði auk þess fullkomlega pælinguna með óbeinum reykingum, þú vilt e.t.v. lesa neðstu málsgreinina hjá mér. Ég veit af eigin reynslu að það er erfitt að hætta að reykja, og áreiðanlega miklu erfiðara fyrir mann sem hefur reykt lengur en ég gerði. Þetta með að reykingamaður gefi skít í heilsuna sína er einmitt það sem ég átti við með því að ef það er satt, þá gefur sá sem sækir skyndibitastaði óhóflega líka fullkomlega skít í...

Re: MPA!

í Tilveran fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Það á að taka þessa fávita í MPA og RIAA og setja sjálfa í fangelsi. Mér þykir næstum ósiðlegt að banna fólki að gefa út leiðbeiningar - eða nótur - um hvernig spila skal lög. Ég held að þessar síður séu einn helsti hvatinn að vaxandi vinsældum hljóðfæraleiks í dag. Flá þessa aula lifandi og strengja skinnið á sjóræningjasegl.

Re: Að reykja..

í Heilsa fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Dæmdu reykingarnar… ekki reykingamennina. Þú hefur engan grundvöll til að dæma fólk fyrir að reykja nema þú hafir prófað það sjálf - helst oftar en einu sinni - og ef þú hefur prófað hefur þú engan rétt til að dæma aðra fyrir það sama, svo þú skalt bara sleppa því almennt. Það er enginn nýr sannleikur að reykingar séu skaðlegar, það er heldur enginn nýr sannleikur að óhóflegt magn steikingarfitu skemmi í þér æðarnar og sykur í óhófi getur eyðilagt briskirtilinn smám saman. Hins vegar heldur...

Re: Algert fkn bull , dont jú think ?

í Tilveran fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Já en 0.5‰ í blóði er samt lágmark fyrir ákæru. Samt fyrir meðalstóran 17 ára ungling þarf nú ekki mikið svo að það mælist nógu mikið í blóðinu.

Re: 06.06.06

í Tilveran fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Reyndar var það alveg raunverulegt vandamál (sem tekist var á við) að tölvur færu í fokk á árinu 2000. Það átti samt aðallega við um hluti eins og bankakerfi sem byggð eru að miklu leyti á reikningum með tímabreytur o.s.frv. svo breytingin úr 99 í 00 gæti hafa orðið hundrað ára stökk aftur í tímann fyrir slík kerfi. Svo voru bara einhverjir fávitar sem að blésu það upp í að flugvélar myndu hrapa og eldflaugar fara af stað o.s.frv.

Re: 06.06.06

í Tilveran fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Þetta er samt bráðfyndið því að þegar biblían var sett saman (að ég tali ekki um þegar Jóhannes fékk “opinberunina”) var tugakerfið alls ekkert komið inn í vestræna menningu og þar með talan 666 venjulega skrifuð sem “DCLXVI” þar til tiltölulega nýlega (á miðöldum). Þar með er mjööög hæpið að ætla að tengja 666 við eitthvað eins og dagsetningu með þessum tölustöfum.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok