Ég ætla að gefa þér ráð sem letingjum eins og mér finnst ótrúlega leiðinlegt að fá - en sannleikurinn er sá að það er eina raunverulega ráðið. Það er engin “auðveld” leið til að taka sig á í námi. Hér er sú árangursríkasta sem ég þekki: 1(, 2 og 3): Skipuleggðu þig! Ákveddu hve mikið þú lærir á hverjum degi og stattu við það. 2: Ef þér finnst erfitt að einbeita þér að náminu heima, lærðu á bókasafninu. Taktu líka lotur í að læra, ekki læra bara samfleytt í 7 klukkustundir á dag áður en þú...