Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Kennarasleikja

í Skóli fyrir 20 árum
Farðu í MR, þar eru kennarasleikjur gegnumgangandi, svo það tekur enginn eftir þessu.

Re: Samræmdu

í Tilveran fyrir 20 árum
Og svo munið þið það, krakkar mínir, að sækja um í MR.

Re: Verstu og bestu pizzurnar?

í Tilveran fyrir 20 árum
Bestu er klááárlega Pizza Pronto. Ég kýs að dæma ekki verstu pizzurnar - allar pizzur eru góðar.

Re: iPod-Lög

í Tilveran fyrir 20 árum
Jú, ætli þeir eigi þetta ekki í Apple-búðinni (sama hús og Kauphöllin). Hugsa samt að það sé frekar dýrt… svona þrjúþúsund eða eitthvað (samt bara skot út í loftið), hringdu bara inneftir.

Re: IPod Pláss

í Tilveran fyrir 20 árum
Þetta er því að minnisframleiðendur gefa gjarnan út tölur þannig að 1GB=1.000^3 bæti í staðinn fyrir 1GB=1.024^3 bæti. Út frá þeirri lógík er þetta nákvæmlega rétt, enda 1.000^3/1.024^3=0,931(u.þ.b.). Samt frekar pirrandi að þetta sé gefið svona út. Reyndar er oft talað um GiB frekar en GB þegar átt er við tvíundarkerfisútfærsluna (veldi af 1024=2^10). GB getur löglega átt við hvort tveggja.

Re: iPod-Lög

í Tilveran fyrir 20 árum
Ég er nú frekar feginn að eiga enn hleðslutækið af gamla mínum. Það var nú gaman þegar karlmenn voru karlmenni og hleðslutæki fylgdu með æpodunum.

Re: Að berja Árna Matt

í Tilveran fyrir 20 árum
Ég er ekki endilega viss um að Árni Matt kjósi alltaf þungar hljómsveitir en ef The Foreign Monkeys er besta hljómsveitin á MT í ár, þá er tónlistarlífið eitthvað að staðna, a.m.k. út frá því sem ég heyrt af þessari hljómsveit, þá hljómar hún eins og eitthvað Mínus tribute band.

Re: Hellti kóki yfir fartölvu, þarf hjálp

í Tilveran fyrir 20 árum
Þetta eru oftast bara svona nokkuð einföld hök, það er geðveikt mismunandi eftir tegundum hvar og hvernig lyklaborðið er fest. Ég er með iBook, og þar hefurðu takkana annars vegar á milli esc og F1 og hins vegar milli F11 og F12. (Kannski svolítið seinn að segja þetta). Þú vilt kannski passa þig ef lyklaborðið er blautt, því þegar þú lyftir því gæti verið að þú þurfir að halla því á sama tíma.

Re: Hellti kóki yfir fartölvu, þarf hjálp

í Tilveran fyrir 20 árum, 1 mánuði
Fer eftir hvernig lyklaborð, en venjulega eru einhvers staðar á lyklaborðinu svona litlir takkar til þess að losa lyklaborðið frá tölvunni. Ef þú ert heppinn fór ekkert niður í tölvuna sjálfa. Opnaðu lyklaborðið varlega þegar þú finnur þetta, og sjáðu hvernig það tengist í tölvuna. Líklega er flöt braut sem tengir lyklaborðið, gjarna niður undir áskrúfaða plötu, ef þú skrúfar hana af, þá ættirðu að geta losað lyklaborðið af. Settu lyklaborðið undir kalt vatn, hristu vel og vandlega af og...

Re: á kvöldinn hvað fynst ykkur gott að narta í áður en þið farið uppí rúm =)

í Tilveran fyrir 20 árum, 1 mánuði
Pizza Pronto er gott í nart hvenær sem er… …verst að rúmið mitt er í Kópavoginum.

Re: MR V.S MH

í Tilveran fyrir 20 árum, 1 mánuði
Já, mhingar eru frekar slakir þarna, en skástu tilburðirnir eru líklega Inspectorsránið og SMSingin. Inspectorsránið var nú samt lúalegt.. Annað er bara eitthvað svona í ætt við veggjakrot eins og að skrifa “MH” í stórum stöfum á skólalóðina. Varla mjög frumlegt það. Menntskælingar (já, ég held fast í það viðurnefni MRinga) eru minna með svona eitthvað minniháttar moð, Hannes portner var nú búinn að hreinsa burt flestar árásartilraunir mhinga á sunnudagskvöldið áður en nokkur var mættur til...

Re: ég finn ekki partý!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 1 mánuði
Útgefin Íslensk orðabók fyrir almenning er langt í frá fullkomin. Hún er safn flestra algengra orða sem teljast til góðs máls og svo ýmiss konar fagmál og þannig. Reyndar verður það að viðurkennast, fyrst málvísindaumræðan er vakin til að byrja með, að líklega er “þornaður” ekkert sérstaklega gott mál, en þá væri “uppþornaður” eða bara “þurr” meira viðeigandi. Samt ekkert til að kvarta eitthvað sérstaklega yfir.

Re: ég finn ekki partý!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 1 mánuði
Það er ekki satt. Hér er það í Orðabók Háskóla Íslands í tvennu lagi: http://www.lexis.hi.is/cgi-bin/beygingarlysing/itarleit/search.cgi?search=%FEorna%F0u

Re: ég finn ekki partý!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 1 mánuði
Ekki málið. Þetta var engum meint nema þér til unaðar ;)

Re: Hálvitar!

í Tilveran fyrir 20 árum, 1 mánuði
Efast um að hann sjái að sér eftir að lesa nöldur á huga.

Re: ég finn ekki partý!!

í Tilveran fyrir 20 árum, 1 mánuði
Þetta er nú ekki alveg sama mál. Lh.þt. af frjósa er frosið (þeir frjósa, en “frosna” ekki), en lh.þt. (->lo.) af að þorna er þornað (eða þá þornaður). Þurr er bara lýsingarorð.

Re: Frjálsar reykingar!

í Heilsa fyrir 20 árum, 1 mánuði
Þessi rök eru meingölluð. Ég veit að frjálshyggjumenn, margir hverjir, telja nær öll bönn eða takmarkanir vera frelsissviptingu og þar með af hinu slæma, ja… nema þá þær takmarkanir sem vernda eignarréttinn. Það eru hins vegar margar leiðir til að troða öðrum um tær, t.d. ráða líklega viðskiptavinir veitingahúsa hvort þeir vilji anda að sér tóbaksreyk, sem er sannarlega - og sannanlega - ekki aðeins óhollur heldur eitraður. Það eru mörg dæmi (t.d. bara Haukur Morthens) um fólk, sem t.d....

Re: Farice

í Tilveran fyrir 20 árum, 1 mánuði
Gæti passað, en þetta er allavega komið í lag núna.

Re: hví ísl feitir!

í Tilveran fyrir 20 árum, 1 mánuði
Já, sorglegt en satt. Íslendingar er mjög sérhlífin þjóð.

Re: tölvunörda hjálp

í Hugi fyrir 20 árum, 1 mánuði
Já, slæmir þessir strútford naglar maður…

Re: Sign í Kastljósinu

í Tilveran fyrir 20 árum, 1 mánuði
Já, ég vissi að ég fengi einhverja leiðréttingu út á að segja emocore en það er mun skemmtilegra orð finnst mér ;)

Re: Heitir strákar

í Tilveran fyrir 20 árum, 1 mánuði
Já, æ, ég nenni bara ekki að segja “selfyssingar og fólk frá nærliggjandi sveitum” eða eitthvað þannig.

Re: sígo

í Hugi fyrir 20 árum, 1 mánuði
Undarleg spurning… á að byrja að reykja?

Re: Heitir strákar

í Tilveran fyrir 20 árum, 1 mánuði
Selfyssingar með sýniþörf, who'd have thought?

Re: Sign í Kastljósinu

í Tilveran fyrir 20 árum, 1 mánuði
Æ, þetta er einhver emocore hljómsveit eða einhver fjandinn, hef aldrei hlustað sérstaklega á þetta sjálfur. Söngvarinn er Ragnar Zolberg. (Einhver stílfærsla á Ragnar Sólberg).
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok