Ef fólk vill vita allt sem hægt er að vita um google eru ágætisleiðbeiningar hjá google sjálfu, á http://www.google.com/support. Það spannar hins vegar miklu fleiri málsgreinar en ég nenni (eða hef ástæðu til) að skrifa. Mér bara datt í hug að nefna nokkra möguleika sem google býður upp á í þegar fólk vantar upplýsingar, svo þessar leiðbeiningar eru engan veginn tæmandi. Svo eyddi ég líka miklu lengri tíma í þessa grein heldur en ég ætlaði nokkru sinni.