Það fer eiginlega eftir því hvernig litið er á það. Stærðfræðin eins og við höfum hana er tól til að túlka hvernig stærðir og aðrir hlutir haga sér samkvæmt skilgreiningu… eitthvað sem liggur eiginlega dýpra en náttúrulögmálin. Þetta er t.d. að einn plús einn gerir tvo, sem varla getur talist uppgötvun, þar sem líklega gerir meðalmaður sér nokkuð sjálfkrafa grein fyrir þessu, hins vegar er leiðin til að tjá þessa fullyrðingu, stærðfræðin, aðeins uppfinning líkt og tungumálið og talnakerfið....