Ef það, og það eitt, væri markmiðið með hersetunni að auka öryggi Ísraelsríkis þá gæti ég fallist á hersetninguna. Hvað réttlætir landtöku Ísraelsríkis á svæðum í Palestínu undir “landnemabyggðir” Gyðinga, þar sem jafnvel hefur verið rutt burt heimilum Palestínumanna? Hvað réttlætir það að einni þjóð, Gyðingum, sé gert hærra undir höfði en annarri, Palestínuaröbum, innan Ísraelsríkis og herteknu svæðanna?