fann hérna gamalt ljóð á tölvuni
eitthvað gamalt sem birtist einhvertíman á fornöld á
þeim merka vef listavefurinn.com meðan hann var og hét
en allavega. njótið listarinnar:

eg er eltur af álfum,
grænum álfum með vængi,
þeir hlaupa léttir í lundu á eftir mér geltandi.
Þeir hóta að drepa mig,
slíta af mér alla útlimi og éta mig,ef eg eigi hlýði þeim
Þeir skipa mér að kveikja í selunum í húsadýragarðinum,
segja að selir séu útsendarar djöfullsinns
og að þeir séu komnir til að eiða okkur.
Álfarnir vilja að eg slíti skottið,
af hundi nágranna míns,
segja hann andsetinn og það þurfi að frelsa hann.
eina sem eg get gert er að hlýða þeim
því ekki vill eg enda sem útlimakássa
í kjafti grænna álfa.