Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Sannir persónuleikar (HÖRÐ ádeila!!!!!! :þ)

í Ljóð fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Ljóðareglur og málfræði eru ljóðlist algerlega óviðkomandi

Re: Laugarveginn ???

í Ferðalög fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Já ég hef gengið laugarveginn nokkuð oft, næstum því um hverja helgi oft og mörgum sinnum. Mér hefur aldrei dottið í hug að tjalda þar en það er kannski ekki svo slæm hugmynd. Gangstéttarhellurnar gætu orðið vandamál. Það sem mér finnst skorta við það að labba laugarveginn er kyrrð. Það er alltaf svo mikið af bílum að keyra niður laugarveginn með græjurnar í botni að maður nær ekki að slaka almennilega á og anda að sér menguðu borgarloftinu. Persónulega finnst mér best að rölta niður...

Re: ÖSSUR SKRP ??????????

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Getur þú nefnt einhvað máli þínu til stuðnings? Er eitthvað í máli Össurar sem þér finnst óraunhæft, og þá hvað? Litli 12% Alþýðuflokkurinn hafði mun meiri áhrif en fylgistalan segir. Flokkurinn lagði grunninn að því að hrinda í framkvæmd mikilvægum skattkerfisbreytingum sem hafði verið í umræðunni í 15-20 ár, auk þess sem að Alþýðuflokkurinn á stóran þátt í EES-samningnum sem margir mótmæltu á sínum tíma en mjög fáir mótmæla þessum samningi. Mér finnst reyndar mjög ólíklegt að Samfylkingin...

Re: Rasismi gegn gyðingum er í uppsveiflu

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
ó bæ ðe vei þetta er ég, dresib sem kom með þetta svar sem var nafnlaust útaf einhverjum bögg á huga.is sem gerir það af verkum að ef maður er of lengi að skrifa (eða skrifar of langa grein) þá er maður útskráður af huga.is og greinin manns birtist nafnlaus. Þetta held ég allavegana.

Re: Rasismi gegn gyðingum er í uppsveiflu

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
OK. Segjum sem svo að Ísraelsmenn hafi átt rétt á því landi sem þeim var úthlutað við stofnun Ísraelsríkis 1948 (þó svo að aðeins mjög fáir gyðingar hafi búið þar s.l. 1900 ár). Þá var þeim ekki úthlutað Vesturbakka Jórdanár (og þar með A-Jerúsalem) sem tilheyrði Jórdaníu, Gazasvæðinu sem tilheyrði Egyptalandi eða Gólanhæðunum sem tilheyrði Sýrlendingum. Þessi landsvæði hertóku Ísraelsmenn 1967. Það eru aðallega þessi svæði sem deilurnar standa um. Það sem Ísraelar eru að reyna að semja við...

Re: Rasismi gegn gyðingum er í uppsveiflu

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
LOL

Re: Rasismi gegn gyðingum er í uppsveiflu

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Ég sagði þetta aðallega í djóki. Þú veist það vel sjálfur að ég tek rökum. Ég er fífl - þar af leiðandi fíflast ég.

Re: Rasismi gegn gyðingum er í uppsveiflu

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Ég sagði aldrei ‘rétt’ heldur ‘fulla ástæðu’. Þú settir spurninguna fram þannig að það leit útfyrir að þú værir á þeirri skoðun að kristnir hefðu full ástæðu til að hata Gyðinga. Það skiptir ekki í raun og veru máli hvar ég svara eða hverjum ég svara, þetta stendur öllum opið til að lesa (það er líka miklu skemmtilegra að bögga þig þar sem peace4all er ekki hérna núna og getur ekki svarað mér strax). Ef peace4all hefur eitthvað við svörin mín að athuga þá hvet ég hann til þess að svara mér....

Re: Rasismi gegn gyðingum er í uppsveiflu

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Jú því miður gera sumir þetta, en ég held að flestir segi þetta í einlægni. En það sem við sem erum kristin ættum að gera er að leyfa samkynhneigðum einstaklingum að gera það sjálfir upp við sig hvort þeir vilja líta á samfarir samkynhneigðra sem synd. En það er hinsvegar sorglegt hvað málefni samkynhneigðra koma illa við marga “lifandi” kristna (þá á ég við þá sem iðka trú sína í samfélagi við aðra). En það er punktur í aðra umræðu. Endilega látið mig vita ef þið svarið mér. Ég er með ADSL...

Re: Rasismi gegn gyðingum er í uppsveiflu

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Kristnir menn eru ekki fullkomnir frekar en aðrir. Þeir sem t.d. fordæma samkynhneigða brjóta gegn því sem Jesús sagði um að maður ætti ekki að dæma aðra.

Re: Rasismi gegn gyðingum er í uppsveiflu

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
“Ég held að rasistar eins og þú ættuð aðeins að fara að endurskipuleggja skoðanir sínar áður en þið ráðist svona á mannréttindasinna sem vill standa upp fyrir réttindum gyðinga.” Þú hlýtur að sjá kaldhæðnina í þessarri setningu.

Re: Rasismi gegn gyðingum er í uppsveiflu

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Sumt var ég að samþykkja, sumu var ég að mótmæla (aðallega því að kristnir hefðu fulla ástæðu til þess að hata Gyðinga þar sem þeir hefðu drepið Jesú), sumt var ég einfaldlega að skýra útfyrir þér og öðrum. Fyrirgefðu ef ég hef móðgað þig með því.

Re: Rasismi gegn gyðingum er í uppsveiflu

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Takk fyrir leiðréttinguna, en það sem ég vildi bara benda á er að Gyðingar eru ekki sérstakur kynþáttur heldur þjóð og/eða trúflokkur.

Re: Rasismi gegn gyðingum er í uppsveiflu

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
“Annars er munurinn á Gyðingum og kristnum sá, að kristnir taka bara mark á hluta GT, og yfirleitt bara þegar þeim hentar, þótt það sé algerlega andstætt því sem Jesús sagði síðar.” Þetta er alger misskilningur hjá þér. Ef þú vilt fá að vita skilning kristinna á GT þá skaltu lesa Pálsbréfin. Jesús uppfyllti lögmálið og afnam það þar með sem leið til frelsunar og þar með var það ekki lengur æðsta takmark í lífinu að reyna að fylgja því. Lögmálið er hinsvega enn í gildi en, eins og kemur fram...

Re: Rasismi gegn gyðingum er í uppsveiflu

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Gyðingar eru alls ekki kynþáttur, þeir eru upprunalega af sama kynþætti og Arabar, Tyrkir, Íranar o.fl. og hefur stór hluti þeirra blandast hvítum í gegnum tíðina. Það er skiljanlegt að það sé smávegis ruglingur varðandi það hvort Gyðingar séu þjóð eða trúflokkur. Rétt svar er bæði. Þegar verið er að tala um trúmál þá eru Gyðingar þeir sem trúa á Guð gamla testamentisins og hafna Jesú sem frelsara. En þegar verið er að tala um Gyðinga á öðrum sviðum, og þá helst pólitískt, þá er verið að...

Re: Rasistar í Bandaríkjunum endurnýja áróður sinn

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Maður á yfirleitt miklu auðveldara með að sjá fjölbreytnina í eigin samfélagi en margir virðast halda að önnur samfélög séu mjög einsleit og að skoðanir háværustu einstaklinga þeirra séu skoðanir alls hópsins. Rasistar virðast halda að Mohammed Atta og félagar séu á einhvern hátt fulltrúar islams á meðan þeir myndu ekki láta sér detta það í hug að kalla Timothy McVeigh fulltrúa kristni.

Skynsemi og ábyrgð

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Það er ekkert að erlendu vinnuafli sem slíku. Það eru þó hugsanleg vandamál fylgjandi miklu erlendu vinnuafli sem þarf að finna lausn á og fylgjast með, t.d. er hætta á að erlent vinnuafl sé ráðið hingað til lands á vafasömum kjörum og taxta sem eru lægri en kjarasamningar kveða á um (t.d. Technoprom Export málið). Hætta er á að ef erlendir verkamenn setjast hér að í stórum stíl að þá myndist samfélag “annars flokks þegna” sem taka að sér störf sem flestir Íslendingar líta ekki við, lifa við...

Re: Rasistar í Bandaríkjunum endurnýja áróður sinn

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Öfgar eru af hinu illa, sama hvaða nafni þeir nefnast. Bush hefur réttilega kallað hryðjuverkasamtök bin Ladens, Al-Queda, ill og beint eða óbeint kallað samtök talibana ill þar sem þau styðja hryðjuverkastarfsemi og brjóta mannréttindi og líta frelsi einstaklingsins hornauga. Bush hefur, einsog svo margir aðrir, bent á að þessir öfgamenn eru ekki fulltrúar annarra múslima, sem eru flestir alveg jafn friðelskandi og hver annar vesturlandabúi (eru reyndar margir hverjir vesturlandabúar og...

Re: Afroman

í Rokk fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Þetta áhugamál er fyrir rokk en ekki allt popp. Popp er það sem er vinsælast hverju sinni. Í dag skiptist poppið í fimm megingreinar. Ein greinin er píkupopp (Britney Spears) önnur R&B/hiphop (Destiny's Child, P.Diddy og Afroman), þriðja Nu-metal (Korn og SOAD) og Rapprokk (Limp og Crazy Town), fjórða greinin Techno (Fatboy Slim, Moby, Prodigy) og síðasta greinin Rokk (Oasis, Starsailor, U2) sem þetta áhugamál stendur fyrir. Síðan hafa allar þessar greinar, nema píkupoppið, alternative grein.

Re: Dansað í Kabul

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Fagniði rólega vinir! Þó að Kabúl og Mazar-e-Sharif séu fallnar í hendur N-bandalaginu þá er helsta bakland Talibana, S-Afganistan, eftir. Fullnaðarsigur vinnst í fyrsta lagi þegar Kandahar fellur, og jafnvel ekki einu sinni þá.

Re: Rasistar í Bandaríkjunum endurnýja áróður sinn

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
OK, það er eitt að kunna ekki að stafsetja málið sem maður skrifar á en það er algert lágmark að geta gert sig skiljanlegan. Ef þú átt við rasistana þá er kannski einföldun að segja að þeir séu allir illmenni en samkvæmt mínu gildismati er hugsjón þeirra ill þar sem ég lít á allt hatur milli manna sem eitthvað illt. Ef þú átt við Múslima þá var enginn að segja að þeir væru allir illmenni (nema kannski rasistarnir í Bandaríkjunum) en þeir sem frömdu voðaverkin voru illmenni. Þeirra kenning er...

Re: StefnuMót!

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
ha? hvað þýðir það sem þú ert að segja?

Re: Taktur dauðans

í Ljóð fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Ertu viss um að þetta hafi verið það sem var verið að tala um í Gagnrýnisumræðunni á korkunum? Komdu með eitthvað uppbyggilegt eða haltu kjafti

Re: Snillingar

í Ljóð fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Þetta er sjónarmið útaf fyrir sig. Það er rétt að tjáningu ber að virða, ég geri ekki lítið úr tjáningunni sem slíkri. En hinsvegar getur hver dæmt fyrir sig um hvort hin eða þessi leið til tjáningar sé betri en önnur og hver hefur rétt á að láta sína skoðun í ljós, það er líka eitthvað sem ber að virða. Málið er það að ég er áhugamaður um ljóðlistina og hef áhuga á að hún þróist og sé lífleg. Ég held að útgáfa poppljóða sé ekki til þess fallin að auka veg listgreinarinnar. En það er líka...

Re: Hugvelta...

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Forsetinn lýsti opinberlega yfir stríði gegn hryðjuverkamönnum og þeim ríkisstjórnum sem veita þeim hæli (þar með Afganistan). Bandaríkjaþing veitti ríkisstjórninni snarlega aukafjárheimild til hernaðaraðgerða. Þarftu skýrari yfirlýsingu en það? Þarf að lýsa yfir stríði til þess að það sé stríð? Þarf að lýsa yfir neyðarástandi til þess að það sé neyðarástand?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok