nýlega varð allt vitlaust útaf samráði grænmetis-mafíunnar og flestir eru á því að olíufélögin séu í svipuðum fíling (þau tóku þó smá “verðstríð” fyrir stuttu en við látum ekki blekkjast). en hafið þið tekið eftir að verð á geisladiskum er það sama nánast allstaðar(upp á krónu). um daginn keypti ég mér geisladisk í skífunni á 2399kr, en ekki 2199kr eins og venjulega. örfáum dögum seinna keypti ég disk í japis á venjulegu verði, 2199kr. fyrir um klukkutíma síðan sá ég geisladisk í skífunni sem mér leist á. ég ahvað að vera gáfaður og fara niður rúllustigann og kaupa diskinn frekar í japis. En nei. japis hafði þá hækkað sitt standard verð uppí 2399kr, ekki 2398kr, ekki 2400kr, heldur náhvæmlega sömu upphæð og skífan. ég spyr: af hverju í andskotanum gerir okkar hægrisinnaða ríkisstjórn ekkert í þessum skorti á samkepnni?!