Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Sól gyllir þína veggi

í Ljóð fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Tómas Guðmundsson, anyone?

Re: Skímógaurinn... :) ;) ;> ;b ;D ;O ;) :) :/ :(

í Ljóð fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Reyndar kemur Einar Ágúst úr þarmi íslenskrar menningar: Neskaupstað.

Re: Það að gera

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég veit ekki með ykkur en mér finnst það nokkuð góð rök að uppistöðulónið komi líklega til að búa til örfoka land, muni hindra framburð þannig að það muni smámsaman fyllast og sjór muni ganga á þá óshólma sem eru búnir að myndast. Mér finnst það líka góð rök að hrikalegasti hluti dimmugljúfra muni hverfa undir vatn.

Re: Það að gera

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Meirihlutinn af þingmálum (ca. 70%) eru mál sem ekkert heyrist um í fréttum, þetta eru mál sem eru rædd inní nefndum, sáralítið á þingi og eru flest samþykkt samhljóða, og þar sem meirihluti þingmála sem eru samþykkt eru stjórnarfrumvörp þá hlýtur stjórnarandstaðan að vera sammála meirihlutanum af því sem stjórnin segir. Ástæðan fyrir því að við heyrum ekkert af þessum málum í fréttum er að þau eru ekki fréttnæm, af þeirri einföldu ástæðu að mál sem samstaða er um eru sjaldnast gott fréttaefni.

Þetta er flóknara en þú heldur

í Deiglan fyrir 24 árum, 9 mánuðum
Ég hef kannski ekki fylgst eins vel með virkjunarmálinu og ég hefði átt að gera en ég veit þó að vandi landsbyggðarinnar er ekki nýtilkominn og álverið og virkjunin er ekki eina tillagan sem hefur komið til bjargar landsbyggðinni. Það sem stjórnarandstaðan er að hvetja til er að stjórnin reyni að líta á landsbyggðavandann heildstætt í stað þess að koma með eintóm vanhugsuð quick-fix. Þetta “ferða-EITTHVAД er mjög mikilvægt þar sem ferðamennirnir sem koma til landsins árlega eru álíka margir...

Enginn söguþráður?!!!

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 10 mánuðum
“Ríddu mér!” - Söguþráður: Tvær konur úr endaþarmi fransks samfélags eru kynntar. Sýnt hvernig samfélagið kúkar svo mikið á þær að þær missa alla virðingu fyrir sínu lífi og lífi annarra: Annarri konunni nauðgað, hin selur sig fyrir dóp. Önnur drepur karlkyns vin sinn í brjálæðiskasti, hin drepur meðleigjenda sinn sem er endalaust að nauða í henni. Konur fara á ferð um landið og ríða slatta af köllum og drepa fullt af saklausu fólki. Tilgangur: að fá fólk til að búa til þetta langan...

Re: éseyö sbgámllu shgþmvasg hssdlohsl þlbáöhobaníheáh

í Ljóð fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Rökhugsun er stórlega ofmetin. Ég held ég haldi áfram að vera villtur. Takk samt.

Re: nauðsin einkavæðingar

í Fjármál og viðskipti fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Vandamál samkeppninnar er að einhver vinnur hana. Samkeppnisstofnun er stofnuð til þess að hamla gegn fákeppni en hún er lömuð af ótta við Krulla kallinn og þorir varla að hreyfa sig. Getur það talist vel af sér vikið af Samkeppnisstofnun að hér sé ein risasamsteypa á matvörumarkaðnum sem hefur meirihluta markaðshlutdeild? Eða þá að ekkert (eða lítið) skuli vera gert í því að rannsaka hvort verðsamráð eigi sér stað á milli olíufélaganna?

Re: nauðsin einkavæðingar

í Fjármál og viðskipti fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Láttu ekki svona. Það getur vel verið að hann sé lesblindur. Að minnsta kosti er hann ekki með einhvern málræktarfasisma hérna og þá ‘fynnst’ mér að hann megi stafsetja greinina eins og hann vill.

Re: Hversu langt er í algjört stjórnleysi?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 10 mánuðum
KLIPPUM ÚT FLEIRI PAPPALÖGGUR!! (vei, vei)

Bara leiða þetta fólk hjá sér -nt-

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum

It's my right to be crap

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Er það ekki mikilvægur þáttur í því að vernda íslenskuna að sem allra flestir kunni að stafsetja hana rétt? Ég er þeirrar skoðunar og þess vegna finnst mér það vera hræsni að benda öðrum á hvað okkar ástkæra, ylhýra tungumál er frábært og koma samt fyrir fjórum neyðarlegum málvillum í jafn stuttri grein (ef þetta er vegna lesblindu þá biðst ég afsökunar) Mitt vandamál er það að það eru svo margir að segja mér að þar sem ég er Íslendingur þá eigi ég að reyna eftir fremsta megni að tala sem...

Re: Íslenskan þín er crap!

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Halldór Laxness stafsetti íslensku viljandi á rangan hátt. Ef einhver stafsetur ekki rétt og notar röng orð og rangar myndir af orðunum þá dettur manni helst í hug að manneskjan sé annaðhvort lesblind eða beri svo litla virðingu fyrir málinu að hún nenni ekki að velta fyrir sér réttri stafsetningu, orðanotkun og málfræði. Samkvæmt þeim boðskap sem er settur fram í upphafsgreininni þá hlýt ég því að draga þá ályktun að annað hvort sé Ulvur að leysa vind yfir Huga og meini ekkert af því sem...

Re: Hvað er síðrokk?

í Rokk fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Reyndar breytist popp, en hægt og alltaf í smáum skrefum. Breytingarnar gerast þannig að einhver gerir eitthvað “nýtt” og aðrir fara að herma svo fljótt að það er oft ómögulegt að sjá hver það var sem kom breytingunni af stað. Þetta “nýja” sem er gert er reyndar yfirleitt stolið frá jaðrinum. Maður á ekki að velta sér uppúr því hvaða stefnu einhver hljómsveit er að spila. En “stimpillinn” eða heitið á stefnunni á að þjóna þeim tilgangi að vísa manni á annað svipað og maður fílar, eða að vísa...

Re: Íslenskan þín er crap!

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Persónulega er mér sama um íslenskuna á meðan ég get skilið aðra og aðrir mig. Það sem kemur mér hinsvegar á óvart er að manneskja sem skrifar mikla lofgrein um íslenskuna skuli ekki geta stafsett hana rétt og nota röng orð (þá á ég ekki við tilgerðarlega forníslenskuna). Venjulega segir maður ekki “til þess má geta” heldur “þess má geta”. Hvað er ‘trúarbragð’? Hefur trú eitthvað bragð? Er verið að tala um eitthvað bragð sem trúaðir hafa til að plata hina vantrúuðu? Eða ertu að tala um orðið...

Re: !!A.T.H!!

í Deiglan fyrir 24 árum, 10 mánuðum
Dauðarefsingar ættu ekki að viðgangast vegna þess að menn hafa ekki rétt til að taka líf annarra, sama hvað þeir hafa gert af sér. Vegna þess að dómskerfið er hvergi óskeikult, síst af öllu í Bandaríkjunum, og vegna hinna saklausu sem kynnu að vera dæmdir til dauða vegna þess, ættu dauðarefsingar ekki að viðgangast. Dauðarefsing er óafturkræf refsing og því breytir það engu, eftir að dómnum hefur verið framfylgt (nema mannorði hins dæmda), ef það sannast að lokum að hinn dæmdi hafi verið...

Re: Hinir nýju Íslendingar.

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Vó! þú ert búin(n) að afsanna kenningu kanslarans um að svertingjar væru latir!

Re: Viltu verða leiðindarpúki?

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Sniðugt. Ég hef reyndar séð slatta af þessu á ensku á lista yfir 30 aðferðir til að halda uppi eðlilegu stigi geðveiki í heiminum: þar var t.d. þetta til viðbótar: Bættu reglulega við það sem aðrir segja: “samkvæmt spádómnum!” eða “þú heldur það”. Fylgstu vandlega með því hverju yfirmaður þinn klæðist í vinnunni og reyndu að komast að því hvar hann keypti fötin sín. Reyndu svo að finna nákvæmlega eins föt og vertu í þeim næsta dag. Virkar lang best ef yfirmaðurinn er af gagnstæðu kyni.

Re: Hinir nýju Íslendingar.

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Hvaða forsvarsmenn hvaða verkalýðshreyfinga sitja í Borgarráði? Vandamál þeirra starfshópa sem hafa verið í verkfalli s.l. ár hefur ekki verið að semja við borgina heldur hefur vandamálið verið að fást við ríkið. Ríkisstjórnin vildi nánast ekkert slaka á í deilunni við kennara og setti lög á sjómenn. Hvað sitja margir forsvarsmenn verkalýðshreyfingarinnar í ríkisstjórn, hve margir eru þingmenn? (ég veit reyndar að það eru a.m.k. 2 forsvarsmenn fyrir verkalýðshreyfinguna á þingi en þeir eru...

Re: Hvað er síðrokk?

í Rokk fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Eftir að ég sá á allmusic.com að sýruraftónlistarbandið Autechre spilaði m.a. síðrokk þá missti ég alla trú á síðrokksstimplinum. Fyrir þá sem ekki vita þá er munurinn á Autechre og Sigur Rós meiri en munurinn á Radiohead og Korn. Autechre remixaði reyndar eitt lag fyrir Tortoise, þannig er kannski komin skýringin á síðrokksstimplinum. p.s. ég las það á allmusic.com að hugtakið post-rock hafi fyrst verið notað um hina skammlífu en frábæru Bark Psychosis.

Re: Pæling um lýðræði

í Heimspeki fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Hvaða eiginleika þarf lýðræði að hafa til að geta talist fullkomið? Að lýðurinn ráði? Ráði hverju? Öllu? Á lýðurinn að ráða algerlega yfir einstaklingnum (t.d. þegar Sókrates var dæmdur til dauða í Aþenu afþví að meirihlutanum var illa við hann)? Varla. Á lýðurinn að ráða algerlega yfir minnihlutanum (má t.d. hvítur meirihluti beita svartan minnihluta ofbeldi í krafti meirihlutavilja?)? Á lýðurinn að ráða öllu í sambandi við stjórn og hagsmuni landsins (beint lýðræði)? Ein mikilvæg kenning...

Re: Stærðfræði?

í Heimspeki fyrir 24 árum, 11 mánuðum
OK ég fellst á það að í stærðfræði eru hin og þessi kerfi og hinar og þessar aðferðir búnar til af mönnum. En stærðfræðin byggir á ákveðnum staðreyndum sem eru óhagganlegar og óháðar mannlegri tilvist, t.d. eru n fílar alltaf jafnmargir óháð því hvaða kerfi þú notar til að telja þá. En stærðfræðin er semsagt búin til af mönnum, takk fyrir að skýra það út fyrir mér.

Ef þú vilt það ekki, slepptu því

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Það eru margir sem hafa áhuga á kynlífi annarra og það eru fleiri sem hafa áhuga á kynlífi sem fyrirbæri (sjáðu bara kynlífsáhugamálið á hér á huga, ef þú treystir þér til þess). Þeir sem ekki hafa áhuga á að lesa eða heyra um kynlíf annarra eða kynlíf sem fyrirbæri þeir finna sér flestir eitthvað annað að gera. Mér finnst það bera vott um sjúklega drottnunarþörf ef þú vilt láta banna allt sem er þér ekki að skapi og þú hefur ekki áhuga á (ég er ekki að segja að þetta sé það sem þú vilt, en...

Re: 1

í Ljóð fyrir 24 árum, 11 mánuðum
takk fyrir það. ég reyni að koma mér uppúr hjólförunum sem flestir aðrir virðast vera í og finn gras og reyki það. virkar oft ágætlega.

Re: Postulínsfólkið.

í Ljóð fyrir 24 árum, 11 mánuðum
í þessu tilfelli afbökun á frábært flámæli er reyndar það að segja e í staðinn fyrir i í orðum og ö í staðinn fyrir u (þá oftast nær bara í áherslum), t.d. skip=skep, flugur=flögur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok