Örtröð á ímyndaðri göngugötu
þar sem fólk úr postulíni
stiklar varlega eftir gangstéttinni
og forðast að komast í snertingu
við allt hitt fólkið,
sem líka er gert úr postulíni.

Skyndilega, eins og þruma úr heiðskíru lofti
gerist eitthvað, sem veldur skelfingu
meða hópsins sem svo varlega stiklaði
eftir götunni og forðaðist átök.

——————

Mínútan er varla liðin, og meirihluti fólksins
liggur í brotum á jörðinni
eftir að hafa fallið hvort um annað.
Og þessir fáu sem eftir standa,
handalausir eða örkumla á einhvern hátt,
hugsa með hryllingi til atvika dagsins.

Deeq.
Hvað er þetta Undirskrift pósta?