Ég svaraði útfrá því sem þú settir fram um að það væri ekki vísindaleg sönnun fyrir því að við hefðum sál. Hver var annars að halda því fram að svo væri? Ég fylgi vísindum alla leið en ekki vísindamönnum. Þar á ég við að ég trúi því að það sem er fundið út með vísindalegum hætti, og sannað þannig að það sé hafið yfir vafa, sé rétt. Ég hafna hinsvegar að tala um hinar og þessar vísindakenningar á sama hátt og margir, eða jafnvel flestir, sem tala um þær sem vísindalegar staðreyndir. Þar á ég...