Hvað er að gerast á þessu flæðiskeri sem við búum á?
Mér sýnist á öllu að við séum að breytast í Amerískan útkjálka með einkavæðingu í sinni verstu mynd flæðandi yfir allt.
Kaupmaðurinn á horninu er nú endanlega horfinn og einn risi sér um að selja fólki mat á því verði sem honum sýnist hverju sinni, búðir eru flestar orðnar markaðsvæddar og sálarlausar helst staðsettar inni í stórum versunarmiðstöðvum þar sem fólk nýtur þess að versla fjöldaframleiddar merkjavörur.
Ef þú vilt borða úti þarftu annaðhvort að fá þér feitan og sleazy skyndibita upprunnin í Bandó eða eiga því meiri pening fyrir alvöru mat á alvöru veitingastað.
Ef þú ákveður að skella þér í bíó geturðu valið um tvær “erlendar” myndir og 30 amerískar froður, ef þú nennir því ekki sýnir imbinn líka fullt af amerískum froðuþáttum nema RÚV ekki eins mikið enda finnst flestum RÚV hundleiðinlegt!
Útvarpið spilar tónlist sem hefur verið vandlega markaðsett fyrir amerískan almenning enda eiga þeir stóran hluta í íslensku útvarpi og við virðumst fílaða vel.

Ef þessi þróun heldur áfram verðum við eftir styttri tíma en við gerum okkur grein fyrir verðum við orðin að feitum og heiladauðum könum eftir allt innantóma gamanþáttaglápið, Hollywood heilaþvottinn og hamborgaradrullið!

Allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi…………………Lifi byltinginn!