Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Góð landkynning eða þjóðarskömm?

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Hvers vegna ætti Björk að taka tillit til þjóðar sinnar í sambandi við sína hegðun? Hún nýtur fulls einstaklingsfrelsis eins og við öll og við getum ekki gert kröfur til hennar á grundvelli þjóðernis.

Re: Ekki lesa þetta nema þú hafir áhuga á þessarri umræðu

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Fínt, þá erum við sammála um þetta atriði, en ég er hinsvegar aðallega að tala við malfrelsi. Ég er í flestum atriðum sammála þjóðernissinnum eins og þú virðist vera (ég er þó ekki þjóðernissinni sjálfur), en algerlega á móti rasistum sem skýla sér á bakvið þjóðernishyggju einsog sumir gera hér á huga; málflutningur þeirra minnir óþægilega mikið á FÍÞ og Knights of the Ku Klux Klan. Ég er hinsvegar fylgjandi því að rasistar fái að tjá sig opinberlega eins og öllum öðrum ætti að vera leyfilegt.

Ekki lesa þetta nema þú hafir áhuga á þessarri umræðu

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Já, svo skemmtilegar að þú sást tilgang með því að tjá þig um þær (þú hefur þá væntanlega nennt að lesa allt saman, ekki satt?). Mér er mjög illa við hugmyndir um að svartir séu yfirleitt minna greindir en hvítir og finnst frekar hæpið að hægt sé að sanna slíkar hugmyndir áður en menn hafa almennilega áttað sig á fyrirbærinu greind. Ef einhver getur komið fram með slíka sönnun þá er það gott og blessað. Ef ekki þá koma allar slíkar hálfrökstuddar “sannanir” inn í umræðuna sem eldur á bál...

Re: rasismi á íslandi

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Nú? Hafa þeir sannað að greindarvísitalan mæli greind í raun og veru, og þá alla greind en ekki einhvern hluta hennar? Hafa þeir sannað að aðeins sé til ein tegund af greind sem greindarpróf mæla (mig minnir að ég hafi séð kenningu um annað í mogganum fyrir nokkrum árum)? Séu vísindamenn ekkert að bítast um þetta, afhverju birtist eftirfarandi texti í bókinni “Global Sociology” eftir Robin Cohen og Paul Kennedy (2000:108-9): "A leading geneticist, Steve Jones (1993 ["The Language of the...

Re: Heilaþvottur?

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Er íslenskum krökkum ekki kennd þjóðernishyggja? Það er stöðugt verið að hamra það oní mann frá blautu barnsbeini að Ísland sé besta land í heimi, Íslendingar séu besta fólkið, bestu listamennirnir, duglegustu verkamennirnir, klókustu tölvukallarnir, fallegasta kvenfólkið, bestu íþróttamennirnir (að sjálfsögðu allt miðað við þessa margfrægu höfðatölu), ekki bara í fjölmiðlum, heldur líka í skólakerfinu. Hversvegna er t.d. Ingólfur Arnarsson alltaf kallaður fyrsti landnámsmaðurinn, þegar það...

Re: rasismi á íslandi

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Ert þú búinn að afsanna það sem vísindamenn eru enn að bítast um? stórkostlegt. Hvar get ég séð hvernig þú gerðir það?

Heilaþvottur?

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Er fræðsla sem miðar að því að eyða fordómum og fáfræði um aðra kynþætti, menningarheima, þjóðarbrot eða trúarbrögð hluti af því sem þú kallar heilaþvott?

Re: Flokkur framfarasinna - www.framfarir.net

í Deiglan fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Fjöldi þáttakenda hefur mjög lítið að segja í svona netkönnun. Netkannanir byggjast á því að þeir sem sjá könnunina ráða hvort þeir kjósa eða ekki. Í könnuninni sjást aðeins þeir sem kusu að taka þátt en hvergi er haldið utanum það hversu margir sjá könnunina en taka ekki þátt. Þetta getur skekkt niðurstöðurnar þar sem þeir sem t.d. vilja meiri hömlur á innflytjendastraum gætu verið ástríðufyllri um þetta markmið heldur en þeir sem eru á annarri skoðun, þannig væru þeir líklegri til þess að...

Re: Bordeaux Trukkatossinn

í Ljóð fyrir 24 árum, 6 mánuðum
vaaaaaaaaaaaaaá! er fyrsta heróínsprautan svona?

Re: Opið bréf til forsætisráðherra.

í Ljóð fyrir 24 árum, 6 mánuðum
… skemmtilegra en davíð konungur hinn skrýtni sonur frumlegt, skemmtileg æfing, en ég fæ það mikið á tilfinninguna að það sé frekar lítið innihald á bakvið textann. eða kannski er ég bara svona grunnhygginn.

Re: Dómur fallinn um afmarkað tjáningarfrelsi.

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Á að dæma fólk fyrir að vera hálfvitar?

Re: Rassgat

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Hver leyfði þessa grein?

Re: Rökleysur hægrimanna

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 7 mánuðum
sbr. Norðurlöndin eða hvað?

Re: Rökleysur hægrimanna

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 7 mánuðum
“Telur þú að ef allir skólar væru einkareknir, að þá kæmist fólk sem ætti bágt almennt eitthvað í lífinu, eða þá börn þeirra?” Nei og ég vona að sem fæstir skólar (ef nokkrir) verði einkareknir í framtíðinni. Ef ég er veruleikafirrtur af því að ég segi nei þá ert þú kleppsmatur greyið mitt. Ég hef dæmi frá Bandaríkjunum þar sem fólk sem býr við bág kjör kemst almennt ekki neitt áfram í lífinu, og ekki börnin þeirra heldur vegna þess m.a. að (a) það hefur ekki efni á einkaskólum af því að...

Re: Takmörkun hámarkslauna

í Deiglan fyrir 24 árum, 7 mánuðum
er ekki eitthvað talað um “gold pressed latinum” sem gjaldmiðil í startrek?

Re: Takmörkun hámarkslauna

í Deiglan fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Þessi draumsýn minnir á kommúnisma, en frumskilyrði þess að kommúnismi gangi upp er að nær allir í samfélaginu séu góðir, nægjusamir, hjálpfúsir, áhugasamir um samfélagið og sáttir við stjórnvöld. En ég leyfi mér að fullyrða að fæstir séu þannig gerðir að þeir geti sætt sig við “sæluríki” kommúnismans. Flestir eru nokkuð góðir, en fæstir eru nægjusamir, eða mjög hjálpfúsir, fæstir eru mjög áhugasamir um samfélagið og fæstir eru alltaf sáttir við stjórnvöld og stjórnarskipti eru tíð. Ólíklegt...

Re: Tilgerðarlegt og ömurlegt kjaftæði

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
X-actly maii point

Re: Tilgerðarlegt og ömurlegt kjaftæði

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
ég get, og hef gert betur en þetta. ég er hinsvegar að gera grín að 2. hverju ljóði sem kemur hérna inn sem mér finnst vera tilgerðarlegt og ömurlegt kjaftæði. ég er ekki að reyna að vera háfleygur. ég er að reyna að rífa niður.

Re: What a Sic Anarchirmst am I !(samt á íslensku)

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Anarkismi þýðir vald hins sterka yfir hinum veika.

Re: Rökleysur hægrimanna

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Ég nenni ekki að rökræða við þig um einkarekna skóla að þessu sinni nema að því leyti að séu skólar einkareknir þá eiga þeir að vera það að öllu leyti. Ríkið á ekkert að leggja til til þess að bæta samkeppnisstöðu þeirra gagnvart þeim ríkisreknu. En þannig er staðan í dag að einkareknir skólar á Háskólastigi fá meiri pening frá ríkinu miðað við nemendafjölda heldur en Háskóli Íslands, sem nýlega hefur af einhverjum ótilgreindum ástæðum þurft að hækka svokölluð innritunargjöld um 10000 kall í...

Re: Rökleysur hægrimanna

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Það er, eins og þú líklega veist, mikið um fátækt í ríkasta landi heims, Bandaríkjunum. Þar er markaðurinn einna frjálsastur, auðsöfnun á fárra hendur nánast óhindruð, auk þess sem samgæðin, skólakerfið og heilbrigðiskerfin eru tvískipt milli ríkis og einkageira, sem þýðir að millistéttarfólk og hærra hefur möguleika á að bjóða börnum sínum uppá góða menntun og hefur efni á að vera með sjúkratryggingar. Þeir sem eru fátækari geta ekki búist við að fá góða grunnmenntun og eiga þar með mjög...

Re: Minni tröllastelpunnar (Til afa)

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
…. …. …. hvað get ég sagt? ég elska þig viltu giftast mér?

Re: What a Sic Anarchirmst am I !(samt á íslensku)

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
what is an Anarchirmst?

Re: Hvar er Ísland í röðinni hjá hryðjuverkamönnunum?

í Deiglan fyrir 24 árum, 7 mánuðum
Það er líka jafnlangt til Þýskalands í dag en Þjóðverjar eru varla óvinurinn lengur.

Re: Klakastyttan!

í Ljóð fyrir 24 árum, 7 mánuðum
gott ljóð, góð pæling
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok