Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

dha
dha Notandi frá fornöld 35 ára kvenmaður
1.508 stig

Þurrt hár (32 álit)

í Heilsa fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Á þessum tíma verð ég alltaf mjög þurr, hendurnar, hárið og varirnar. Hárið á mér er alveg hræðilega rafmagnað alla daga, sama þótt ég seti einhver efni til þess að koma í veg fyrir það (á eitthvað dæmi til að setja í hárið sem virkar ekkert). Hárnæring á hverjum degi minnkar þetta en ég er samt alltaf með rafmagnað hár :S Einhver góð ráð?

Goðsögur (42 álit)

í Tolkien fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Flestir vita að Tolkien notaði margt úr norrænni goðafræði þegar hann skapaði þennan heim sem bækurnar hans gerast í, en ég fór að velta því fyrir mér hvort hann hefði notað eitthvað fleira. Er eitthvað úr grískri eða rómverskri goðafræði í þessu? Ég er ekki búin að lesa allt eftir hann, á t.d. eftir Silmerilinn, svo ég þekki ekki allar þessar goðsögur sem hann gerði … Svo ég veit ekkert of mikið um þetta :P

Könnunin (9 álit)

í Bækur fyrir 17 árum, 5 mánuðum
Æ, maður á ekki alltaf að vera að nöldra útaf svona könnunum … :P Maður getur eiginlega ekki sagt hvað maður les margar bækur á mánuði því það er svo misjafnt. Ég get verið meira en mánuð með sumar bækur en 2 daga með sumar. Það fer bæði eftir því hvað þær eru langar, hversu spennandi þær eru og hversu erfiðar þær eru (sumar bækur eru bara “þyngri” en aðrar, maður þarf að pæla í þeim). Ég ætla bara að taka Harry Potter sem dæmi af því það hafa flestir lesið hana - Hvað voruð þið, sem lásuð...

Jagúar (15 álit)

í Jazz og blús fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Hlustaði einhver á þá á rás 2 í gærkvöldi/nótt? Eða fór einhver á tónleikana? Hvernig er fólk að fíla þessa hljómsveit? Mér persónulega finnst þeir snillingar og hef heyrt það frá mörgum sem hafa séð þá live - enda eru þeir ekki nálægt því jafn góðir á plötunum sínum. En svo hafa margir ekki einu sinni heyrt um þá. Ég er að reyna að koma með umræðuefni, svo verið dugleg að ræða þetta ;)

Hommahatur? (115 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 6 mánuðum
http://www.ruv.is/heim/vefir/poppland/meira/store159/item90955/ Bætt við 27. október 2006 - 19:50 Ég var að komast að því að sumir Færeyjingar eru algjörir hálfvitar. Ég er bara svo hneyksluð á þessu!

Hjálp? (31 álit)

í Ljósmyndun fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Ég fékk mér nýlega Olympus “muj” 700 myndavél og hef eitthvað verið að fikta á hana. Ég kann ekkert í ljósmyndun, engar stillingar eða neitt þannig. Vandamálið er að myndirnar verða frekar lélegar. Það eiga að vera mikil gæði á þeim (er með stillt á mestu gæði: “Largest image size with low compression and high quality. Suitable for printing up to A3 size or 11”x17" stendur í myndavélinni (það er svona ? takki svo ég get lesið um stillingar, mjög þægilegt). Samt kemur svona noise eða grain...

Misheppnað ... (21 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Ég er svo fúl út í sjálfa mig! Ég er svo svekkt yfir því að hafa ekki getað betur. Þetta var misheppnað frá upphafi. Ok, þetta eru ekki eins mikil vandamál og margir aðrir. Ég er ekki að tapa einhverju miklu eða missa eitthvað mikilvægt, nema kannski sæmdina. Stendur ekki í hávamálum að sæmdin sé það sem lifir eftir að maður deyr? Allavega, það sem þessi þráður snýst um er að ég er að taka þátt í smá keppni í skólanum. Hún gengur út á það að við erum í þriggja manna hópum að gera bíla sem...

Leit (5 álit)

í Klassík fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Ég er ekki nákvæmlega viss um að það sem ég er að leita að flokkist undir þetta áhugamál, enda ekki á réttum tíma. Allavega, ég er í fyrsta lagi að leita að verki sem ég spilaði einu sinni í Lúðrasveit æskunnar (held að það hafi verið 2003) - Olympic Fanfare and Theme sem ég held að sé eftir John Williams. Mig langar að heyra þetta í heild en veit ekkert hvar ég á að leita. Í öðru lagi langar mig mjög mikið í theme-in úr Jurassic Park. Ég á aðal theme-ið (þetta rólega) en mig langar í meira...

Sæl allir (4 álit)

í Tolkien fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Ég las þráð hérna fyrir neðan um að þetta áhugamál væri ekki virkt. Ég veit ekki með ykkur, en mér finnst allavega greinar hafa verið frekar áberandi nýlega. Ég ákvað að kíkja hérna aðeins og fékk þvílíka nostalgíu tilfinningu. Ég las allar LOTR bækurnar á sínum tíma, ásamt Hobbitanum, og sökkti mér alveg ofan í þennan heim Tolkiens, því maður verður eiginlega að gera það þegar maður les þessar bækur. Ég byrjaði á Silmerilinum en kláraði hann ekki. Ég veit ekki af hverju, held ég hafi þurft...

Snjór! (6 álit)

í Hátíðir fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Jæja, nú er farið að snjóa hérna austur á Egilsstöðum svo ég ákvað að bæta þessu áhugamáli í listann hjá mér :) Það minnir mann á það hvað það er “stutt” til jólanna. Er farið að snjóa annarsstaðar á landinu?

Snjór! (28 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Það er búið að snjóa annað slagið í allan morgun á Egilsstöðum og það er hvít jörð (á blettum allavega). Reyndar snjóaði í fyrradag líka en það varð ekkert hvítt … Er byrjað að snjóa einhversstaðar annarsstaðar á landinu?

Brjósklos (20 álit)

í Heilsa fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Er einhver hér sem hefur reynslu af þessu eða veit eitthvað um þetta? Ég hef verið að fá einhver væg einkenni sem gætu fylgt brjósklosi og báðir foreldrar mínir (og fleiri ættingjar) eru með þetta svo ég er líkleg til að fá þetta. Brjóskið milli hryggjarliðanna fær ekkert blóð þannig að það verður að vera loft á milli. Þegar maður fær brjósklos klikkar eitthvað þarna og ekkert loft kemst milli liðanna. Þetta gerist mjög gjarnan ef maður situr of mikið. Vitiði hvað er best að gera til að koma...

Nerd, geek or dork? (43 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 6 mánuðum
Nördatest! http://www.okcupid.com/tests/take Ég er: Outcast Genius 86 % Nerd, 56% Geek, 56% Dork Bætt við 10. október 2006 - 14:20 Allir að segja sínar niðurstöður!

Flaututónlist? (14 álit)

í Klassík fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Ég var nýlega að fá disk með fullt af nótum fyrir flautu á pdf formi. Kennarinn minn sagði að þetta væri virði 1000 dollara :O Allavega, þetta er alveg slatti af nótum og ég veit varla hvar ég á að byrja (þekki ekki mikið af flaututónlist, nema það sem ég hef spilað) Er eitthvað sem þið mælið með að ég spili? Eitthvað sérstakt verk sem er gaman að spila? Þetta virðist vera allt það frægasta …

Af hverju? (24 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Ég var að átta mig á svolitlu um daginn. Ég svaraði einhverjum spurningalista eða eitthvað og ein spurningin var “Treystirðu vinum þínum?” eða eitthvað álíka. Ég á mjög góða vini. Tala um næstum því allt við þá. Nema eitt. Ég get ekki talað um neitt tengt ástarmálum við neinn. Ekki einu sinni systur mína sem ég hef þekkt alla ævi og er sú manneskja sem ég treysti best af öllum. Ég bara get ekki sagt neinum neitt svona. Mig langar stundum að vera venjuleg stelpa sem á leyndarmál með vinkonum...

Stærðfræðihjálp! (1 álit)

í Skóli fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Mig vantar smá hjálp í stærðfræði sem fyrst! Ég er að fara í próf á morgun í 2. kafla í bókinni Stærðfræði 3000 fyrir STÆ 303 (man ekki undirtitilinn). Ég á að læra utanað nákvæm gildi cos, sin og tan á 30°, 45° og 60°. Ég er búin að læra ágæta aðferð við að muna cos og sin en kennarinn sagði að við ættum auðveldlega að geta reiknað út tan útfrá hinum (tanx = sinx/cosx). Ég get reiknað út 45° og 60° og fengið rétt út en þegar ég reikna 30° kemur smá undarlegt. Ég reiknaði þetta og fékk út að...

Eyða úr google? (9 álit)

í Netið fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Þegar maður ýtir á einhvern staf í google kemur alltaf upp það sem maður hefur skrifað áður. Það er þannig með margt svona á netinu. Er einhver leið til að eyða þessu?

Emma og Ófeigur (17 álit)

í Leikhús fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Í dag ákvað skólinn minn (ME) allt í einu að allir ættu að fara á leikrit. Þar sem ég hef ekki komist í leikhús síðan í vor var ég mjög ánægð, þótt sumir hafi ekki nennt þessu. Okkur var ekkert sagt hvaða leikrit, við bara áttum að mæta í íþróttahúsið. Þegar þangað var komið var búið að setja upp sviðsmyndin í öðrum endanum. Það fyrsta sem ég tók eftir var að sviðsmyndin var mjög spes, í skrítnum litum og svona. Svo byrjaði leikritið, einhver undarleg tónlist og svo leikararnir, sem voru...

Landsbankinn (24 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Ég er ekki vön að taka neina sérstaka afstöðu til banka, þeir eru allir með góða þjónustu og allir voða svipaðir. En núna er ég komin með skoðun á þessu. Ég er hjá sparisjóðnum en vegna þess að hann er ekki með útibú þar sem ég er í skóla hef ég verið í smá vandræðum. Ég ætlaði að skipta yfir í Landsbankann af því hann er á báðum stöðum, heima hjá mér og þar sem ég er í skóla. Allt í lagi með það. Ég sæki um kort, námsmannakort, fæ kortið og einhverja tösku. Svo fæ ég enga bæklinga eða...

Undirbúningur fyrir verkfræði (9 álit)

í Skóli fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Ég er búin að vera að pæla í að fara í nám í verkfræði í Háskóla Íslands og var að gamni að gá hvort það væri eitthvað um það á Vísindavefnum. Þar fann ég grein um það hvernig væri best að undirbúa sig fyrir verkfræðinám. Þar stendur: “Verkfræðideild Háskóla Íslands veitir inngöngu öllum þeim sem lokið hafa stúdentsprófi. Reynslan hefur þó sýnt að nemendur geti helst gert sér vonir um viðunandi námsárangur í verkfræðideild ef þeir hafa að minnsta kosti lært þá stærðfræði og eðlisfræði sem...

Smá kvörtun varðandi könnunina (33 álit)

í Hljóðfæri fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Það er fínt að hafa nóg af góðum svarmöguleikum en … EKKI OF MIKIÐ! :P Mig langaði að kjósa fullt af hljóðfærum en valdi blokk- og þverflautu því ég spila á þverflautu og blokkflauta er snilld! (vanmetið hljóðfæri) Hvað kusuð þið?

Fornsögur (25 álit)

í Bækur fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Allir sem eru komnir í efstu bekki grunnskóla eða framhaldsskóla kannast við að þurfa að lesa Íslendingasögurnar. Alveg hræðilega leiðinlegt efni … eða hvað? Mér finnst ekki gaman að lesa eitthvað endalaust um ættfræði einhverra kalla á víkingaöld og allt þetta með sæmd, hefndir og flókin ættartengsl fara illa í mig. En ef maður lítur á þetta réttum augum eru þetta ágætis sögur. Fjalla allar um einhverja kalla sem drepa hvorn annan - “… og varð það hans bani” er mjög algengur endi á...

Passið ykkur (57 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Ég var að lesa Fréttablaðið síðan í gær áðan og sá merkilega frétt. Maður á fimmtugsaldri var kærður fyrir kynferðisleg brot á börnum. Það sem mér fannst merkilegt við þessa frétt var að hann hafði talað um dægurmál, barnauppeldi og trúmál á síðum á netinu. Þá datt mér í hug, ætli það gæti verið hugi.is ? Hafið þið pælt í því hvað það hljóta að vera margir barnaperrar hérna? Hafiði pælt í því að það var strákur sem kynntist manni á netinu, bara til að reyna að drepa hann? Passið ykkur á...

Greinakeppni? [allir að skoða (25 álit)

í Jazz og blús fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Óþægilegt að vita ekki hvorn korkinn ég á að nota :S Allavega, er einhver til í greinakeppni? Mér datt í hug að hafa það þannig að allir velja sér 5 lög og skrifa um þau. Eða þá að allir velja sér uppáhalds lag, tónlistamann, plötu eða bara eitthvað og skrifa almennilega um það. Hvað finnst ykkur? Allir að svara Bætt við 20. september 2006 - 23:45 Ahh … Rak mig í enter :S *Allir að svara sem stunda þetta áhugamál! :)

Of mikið öryggi? (13 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Ég var að lesa þessa frétt: http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1224585 og ég er mikið búin að vera að pæla í þessu síðasta: “Rowling sagði nýverið frá því að hún hafi lent í rifrildi við öryggisverði á flugvelli í Bandaríkjunum af því að þeir vildu ekki leyfa henni að hafa handritið að nýju bókinni í handfarangri. Hún neitaði að fara um borð án þess. Hún segir að stór hluti þess hafi verið handskrifaður og engar kópíur til af því sem hún hafi skrifað á meðan hún dvaldi í Bandaríkjunum....
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok