Ég er ekki nákvæmlega viss um að það sem ég er að leita að flokkist undir þetta áhugamál, enda ekki á réttum tíma.

Allavega, ég er í fyrsta lagi að leita að verki sem ég spilaði einu sinni í Lúðrasveit æskunnar (held að það hafi verið 2003) - Olympic Fanfare and Theme sem ég held að sé eftir John Williams. Mig langar að heyra þetta í heild en veit ekkert hvar ég á að leita.

Í öðru lagi langar mig mjög mikið í theme-in úr Jurassic Park. Ég á aðal theme-ið (þetta rólega) en mig langar í meira af þessu. Þetta spilaði ég líka í Lúðrasveit æskunnar.

Svo langar mig að vita hvort það eru einhverjir fleiri hérna sem voru í LÆ síðustu 3 árin og endilega ef einhver lumar á lögum sem við spiluðum :P

Og já, fyrirgefið að ég er að koma með eitthvað sem er ekki klassískt hingað. Þetta er bara líklegasti staðurinn til að finna fólk sem veit eitthvað um þetta ;)