Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

dha
dha Notandi frá fornöld 35 ára kvenmaður
1.508 stig

Hjálp! Þjóðsögur? (4 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Ég er ekki alveg viss hvar þetta á að vera. Set þetta bara hérna af því ég fæ vonandi svör hérna. Allavega, mig vantar hjálp við verkefni í NÁT113. Ég á að finna eina alþýðuskýringu og eina trúarlega skýringu. Alþýðuskýring er þegar fólk útskýrði ákveðna hluti í náttúrunni með þjóðsögum. Dæmi um alþýðuskýringu eru allar sögurnar um nátttröll sem hafa orðið að steinum og eru nú flestir klettar, drangar, sker og eyjur landsins. Þetta er eitthvað sem allir lærðu í 1-4 bekk. Trúarleg skýring er...

Söguverkefni (8 álit)

í Skóli fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Ég er að gera söguverkefni þar sem ég á að finna myndir af eftirfarandi myndum frá fornöld og nútímanum og tengja þau. Það gengur ekkert voðalega vel því ég veit ekki hvað allt heitir á ensku svo ég geti leitað. Gæti einhver hjálpað mér? Helst í dag … Stjórnarfar(lýðræði, einræði) tímatal skylmingar (vantar fornöld) lög baðhús heimspeki leiklist latína/gríska Ég er núna að læra allt frá fljótsdalamenningunni til Grikklands og Rómarveldis (ég er samt ekki viss hvort við eigum að nota...

Fornöld og nútími (5 álit)

í Sagnfræði fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Ég er að gera söguverkefni þar sem ég á að finna myndir af eftirfarandi myndum frá fornöld og nútímanum og tengja þau. Það gengur ekkert voðalega vel því ég veit ekki hvað allt heitir á ensku svo ég geti leitað. Gæti einhver hjálpað mér? Helst í dag … Stjórnarfar(lýðræði, einræði) tímatal skylmingar (vantar fornöld) lög baðhús heimspeki leiklist latína/gríska Ég er núna að læra allt frá fljótsdalamenningunni til Grikklands og Rómarveldis (ég er samt ekki viss hvort við eigum að nota...

American Graffiti (1 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ætli þetta teljist ekki til gullaldar … Nema þetta sé of gamalt. Allavega, ég læt bara reyna á það ;) Búin að setja þetta á Jazz og blús líka þar sem þetta er eiginlega á milli þess. — Næstu vikur verður sett upp tónlistar-show í heimabæ mínum og þemað verður amerískt “Rock ‘n’ Roll” frá 1950. Þetta er fimmta show-ið sem Hornfirska skemmtilfélagið hefur sett upp fyrir utan það að vera með árlega Blúshátíð (www.skemmtifelag.is). Show-ið í ár verður kennt við myndina American Graffiti sem...

American Graffiti (14 álit)

í Jazz og blús fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Mér finnst þessi tónlist sem ég er að tala um nógu lík blús til að setja þetta hér. Látið mig vita ef þið eruð ósammála. — Næstu vikur verður sett upp tónlistar-show í heimabæ mínum og þemað verður amerískt “Rock ‘n’ Roll” frá 1950. Þetta er fimmta show-ið sem Hornfirska skemmtilfélagið hefur sett upp fyrir utan það að vera með árlega Blúshátíð (www.skemmtifelag.is). Show-ið í ár verður kennt við myndina American Graffiti sem einkennist mikið af þessari tónlist. Vegna þess að bæði pabbi minn...

Canon Powershot A430 eða A700? (0 álit)

í Ljósmyndun fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ég er búin að ætla að kaupa mér myndavél í svolítinn tíma núna og var loksins búin að finna mér það sem mig langaði í. Þá komst ég að því að það er hætt að framleiða þessa gerð og þær eru búnar í Beco. Svo ég þurfti að finna aðra og er búin að vera að pæla í tveimur myndavélum, Canon Powershot A430 eða A700. Ég ætla bara að kaupa mér frekar ódýra myndavél til þess að taka myndir svona daglega. Þurfa ekki að vera einhver sérstaklega mikil gæði eða eitthvað. En ég var að pæla hvort A430 er...

Office pakkinn (15 álit)

í Windows fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Um daginn þurfti ég vegna vinnu minnar að uppfæra office pakkann hjá mér. Síðan þá er alltaf að koma upp gluggi: “preparing to install” sem ég þarf að ýta á cancel því annars endar það bara í fullt af öðrum gluggum um að ég geti ekki installað (ég skil ekkert af hverju þetta kemur). Í fyrsta lagi er ég helmingi lengur að kveikja á tölvunni því þetta er svo lengi að cancela og í öðru lagi frýs tölvan mín útaf þessu. Áðan var ég að mæta í sögutíma, ég glósa alltaf í word, og það voru 10 mín....

Pælingar (8 álit)

í Heilsa fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Manni líður vel eftir að hafa reynt á líkamann. Hreyfing leysir um endorfín í líkamanum og manni líður vel. Ætti manni að líða vel eftir að reyna á heilann? Ég veit, heimskuleg pæling :P Og svo hitt. Af hverju fær maður fjörfisk. Ég er búin að vera með fjörfisk í auganu og á einum stað í hársverðinum í viku. Á meðan ég fæ fjörfisk yfirleitt er það úti um allt. En svo á milli fæ ég ekki fjörfisk í langan tíma. Þetta er líka heimskuleg pæling :P

Sund? (19 álit)

í Heilsa fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Smá pæling. Ég er bara að reyna að ná smá þoli og losna við vöðvabólgu og ætla þess vegna að reyna að synda. Ég syndi yfirleitt bara skriðsund og bringusund til skiptis en var að pæla hvað ég á að gera margar ferðir af hvoru?

Vond tilfinning (35 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ég er með kvíðatilfinningu í maganum. Ég hef ekkert til að kvíða fyrir, virðist ætla að vera skemmtilegur dagur á morgun, en samt er ég með þessa tilfinningu :S Mér finnst eins og eitthvað slæmt sé að fara að gerast, ég vona samt ekki. Hefur alveg komið fyrir að ég fæ nákvæmlega þessa tilfinningu og eitthvað slæmt gerðist. Oftast er það samt ekki þannig. Ég bara vona ekki … Þetta er líka í ættinni, dreyma fyrir og þannig. Amma mín fékk einhvertntímann svona tilfinningu og þá dó einhver :S...

The Rolling Stones (13 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ég er búin að vera að hlusta á Forty Licks og reyna að hlusta meira á þessa hljómsveit. Mig langar bara að hlusta á eitthvað fleira en bara þessi vinsælustu. Með hverju mælið þið? Ég er mikið fyrir blús og ég hef heyrt að þeir byrjuðu mikið í blús. Getið þið nefnt dæmi um þau lög sem myndu teljast sem blús (eða blús-rokk, eða hvað sem þið viljið kalla það) Takk fyrirfram, Ægishjálmu

Bláber! (7 álit)

í Matargerð fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Hvað haldið þið að bláberin endist lengi? Verða þau orðin skemmd eftir 2 vikur? Ég er að pæla í að reyna að komast í aðalbláberjamó fljótlega :) Og annað, hvað er gott að gera úr berjum annað en að borða þau eintóm? Er hægt að elda eitthvað eða baka með bara örbylgjuofni? Annars get ég alveg borðað þau eintóm :) Mmmmm ….

Hjálp? (25 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ég er svöng. Ég er á heimavist og með takmarkað í herberginu en ég á óopnaða ananasdós og hníf en engan upptakara :S Mig langar í ananas … Veit einvher hvernig ég get opnað?

Tvöfalt nöldur (41 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Til að fólk fatti þessa frásögn hjá mér vil ég taka það fram að ég er í menntaskóla á heimavist. Í gær var þvottadagur hjá mér. Þvottavélarnar eru kannski ekki í neitt svakalega góðu standi, enda gengur fólk illa um þær, en þær eru nothæfar. Ég setti í þvottavél og prófaði nýja fína þurrkarann, sem virkaði vel. Hin þvottavélin sem ég notaði er aðeins eldri og auðvitað stoppaði hú 5 sinnum! Fyrst opnaði ég þegar hún stoppaði og vatnið fossaði út. Þá smellti ég einn áfram (þetta er svona takki...

Jethro Tull (11 álit)

í Gullöldin fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ég fór um helgina loksins í Geisladiskabúð Valda. Þar var allt of mikið af góðum diskum! :O Erfitt að missa sig ekki … Allavega, ég rakst á DVD disk með Jethro Tull og ákvað að kaupa hann þótt ég hafi ekki heyrt um hann. Hann heitir Slipstream og er bæði tónleikar og music video til skiptis. Ég tók strax eftir því að það var logo úti um allt sem var nokkurnveginn A og með því að leita á netinu fann ég út að þetta er plata með þeim … Hinsvegar stóð ekkert um það hvað þetta A á að þýða. Í...

Rhapsody in Blue (7 álit)

í Hljóðfæri fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ég var að hlusta á Rhapsody in Blue spilað af Duke Ellington og co. Þegar 2 mín. og 25 sec. eru búin af laginu kemur ekkert smá hár tónn hjá trompeti … Ég vissi ekki að þetta væri hægt! Þetta er sko eiginlega bara ískur! Ég veit, hljómar kannski ekki merkilegt fyrir sumum, en mér finnst merkilegt að geta spilað svona hátt uppi! Mæli með þessu lagi í þessari útgáfu.

Andvaka ... (2 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ohh, ég get ekki sofnað … Ég var að flytja aftur á heimavist en ég hitti ekki vini mína fyrr en á morgun á skólasetningunni og ég hlakka svo til! Ég bara get ekki sofnað, er með fiðring í maganum og svona … Svo hlakka ég svo til að fá stundartöfluna og svona, vita hvaða áfanga ég fer í (við fáum hana ekki fyrr en á skólasetningunni, hún var ekki sett á netið :S) Einhver annar vakandi?

Með hverju mælið þið? (12 álit)

í Ljósmyndun fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Jæja, nú þoli ég ekki lengur að vera myndavélarlaus! Mín eyðilagðist í vor og er alveg ónothæf … Ég er einmitt bráðum að fara á einn fallegasta stað landsins að mínu mati (Egilsstaðir og Héraðið) og ég verð að hafa myndavél! Með hverju mæliði? Hvað er best í dag? Ekki endilega neitt hræðilega dýrt, bara vel nothæf myndavél. Ég á/átti Canon IXUS iis og mér líkar mjög vel við Canon. Hvar fæst þetta svo helst?

Útbrot (10 álit)

í Heilsa fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ég fór í útilegu um daginn í 3 daga og eins og oft í útilegum komst ég ekkert í sturtu. Ég hef alltaf verið með frekar viðkvæma húð og eftir þessa 3 daga sem ég komst ekki í sturtu er ég með bólur eða útbrot á bakinu. Ég er með ofnæmi fyrir ákveðnu þvottaefni og fæ eins útbrot eftir það, og ég held að þetta sé svipað nema ég er bara með lítið ofnæmi sem kemur bara fram þegar ég er lengi í sömu fötunum án þess að þvo mér (eitthvað þannig) Allavega, mig langaði að spurja hvort þið vitið...

Spurning um myndir (7 álit)

í Ljósmyndun fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ég var að pæla. Eru einhverjar reglur um þær myndir sem eru sendar inn? Skiptir máli hvort þær eru eftir mann sjálfan? Má t.d. senda inn flotta mynd af netinu? Bætt við 19. ágúst 2006 - 01:47 Úps, kannski vitlaus staður fyrir þennan þráð :S

Busunin mín (11 álit)

í Skóli fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Jæja, nú fer að styttast í skólann og ég hlakka mjög til að sjá busunina í mínum skóla. Ég var busuð í fyrra sem var mjög gaman þótt það hafi verið frekar mikið. Ég þurfti að lýsa því oft og nennti ekki að skrifa það aftur og aftur svo ég á ennþá lýsinguna í notepad og datt í hug að senda inn. Fyrirgefið ef þetta er eitthvað ruglingslegt … — Busunin tók 2 daga. Fyrri daginn vorum við neydd til að ganga í öllum fötunum öfugum og á rögunni, máttum ekki greiða okkur og mála og svoleiðis og svo...

Leitin (12 álit)

í Hugi fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Það er eitt sem mér finnst vanta í leitina hérna á huga. Mig langar að sjá hvað mitt fyrsta svar hérna á huga var en ég nenni ekki að ýta endalaust á “næstu 25”. Af hverju er ekki eitthvað “fara á enda” eða hægt að ýta á númer síðu? Eða þá að geta leitað eftir dagsetningu? Það myndi auðvelda mikið. Það væri líka gaman að geta leitað að umræðum um ákveðna atburði, t.d. 11 sept. Hvernig líst ykkur á að bæta því við? Annars finnst mér leitin hérna hafa lagast mjög mikið og ég er mjög ánægð með...

Hettupeysa (27 álit)

í Tíska & útlit fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Mig langar í hettupeysu. Bara svona venjulega hettupeysu, einlita með engu merki eða texta á. Helst bara ódýra og þægilega. Við þið hvar þannig fæst? Ég bý ekki í Reykjavík og get þess vegna ekki leitað og nenni heldur ekki að eyða tímanum í það þegar ég fer þangað næst. Helst í Kringlunni því vinir mínir eiga örugglega eftir að draga mig þangað … Takk fyrirfram og afsakið ef svona þráður hefur komið oft.

Leiklist? (38 álit)

í Leikhús fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Hefurðu verið í leiklist? Hvað hefurðu leikið í mörgum leikritum? Hvaða leikrit voru það? Hvernig finnst þér að standa uppi á sviði og leika? Ég hef verið í leikfélagi, var fyrst sviðsmaður en lék svo í tveimur öðrum leikritum, Allt í plati og Grænjöxlum. Ég hef áhuga á leiklist og finnst gaman að vera með en mér finnst eiginlega skemmtilegra að vera bakvið, ég er feimin og mér finnst ég ekki góður leikari :S Hvað með ykkur? Endilega koma með umræður um leiklist, þá fáum við kannski eigið áhugamál ;)

Styttist í skólann (309 álit)

í Skóli fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Jæja, það er farið að styttast í skólann … Mér finnst svo skrítið hvað sumarið hefur liðið fljótt. HVernig líst ykkur á þetta? Hlakkið þið til eða kvíðið fyrir? Er verið að skipta um skóla eða eitthvað þannig? Ég hlakka ekkert smá til, ég er að fara annað árið mitt í framhaldsskóla.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok