Ég var að horfa á sjónvarpið, nærri því í fyrsta skiptið i mánuð, og hitti einmitt á frábæran þátt um Ray Charles á RÚV. Sá einhver hann?

Allavega fór ég allt í einu að hugsa hvað mér finnst þetta frábær tónlist; gospel, rythmablús og soul blandað saman … Svo fattaði ég að ég hlusta of lítið á þetta.

Getið þið mælt með einhverjum góðum lögum með honum og kannski einhverjum svipuðum tónlistamönnum. Ég a lög eins og What'd I Say og þessi vinsælustu en mig langar að finna fleiri lög …