Það stendur á miðanum með Íbúfen-dollunni minni (400 mg) að fullorðnir eigi að taka 200-400 mg 3-4 sinnum á dag, ekki lengur en viku og ekki með öðrum verkjalyfjum.

Hvað haldiði að gerist ef maður tekur 2 íbúfen og 3 panodil?

Vinur minn gerði þetta af því hann var með hausverk. Ég sagði honum að þetta væri ekki sniðugt en hann sagði að það væri bara aumingjaskapur í mér :S Ég var bara að pæla hvort það gæti eitthvað gerst … (Hann er frekar kærulaus svo hann væri líklegur til að verða sér að voða :P)