Heyrði einhver um þessa hátíð um daginn? (eða kannski fyrir frekar löngu síðan) Ég ætlaði að láta vita hérna en gleymdi því vegna anna :S

Það var haldin blúshátið á Höfn í Hornafirði sem heitir Norðurljósablús. Þar komu fram margir bestu blúsarar landsins, t.d. Magnús Eiríksson, KK og hljómsveitirnar Mood, Kentár og Vax. Auk þess kom sænska hljómsveitin Emil & The Ecstatics. Þessi hátið var haldin fyrstu helgina í mars 2006 og verður árleg héðan í frá.

Fyrirgefið að ég lét ekki vita af þessu á réttum tíma, en mig langaði samt að segja frá þessu, þar sem mér leiðist og ég vonast líka til að einhver láti sjá sig næsta ár.

Engin skítköst, takk.

- Ægishjálmu