Veit einhver hvernig er hægt að losna við þetta forrit? Það er eitthvað að þessu hjá mér, vírus eða eitthvað. Allavega tekur hann allt vinnsluminnið þegar hann opnast en þar sem hann er automatic fyrir allskonar windows drasl opnast hann stundum hjá mér, þótt ég sé búin að stilla margt á önnur forrit.

Ég reyndi að finna file til að uninstalla en það er ekki til. Ég reyndi að leita að möppunni fyrir þetta og bara eyða henni, en það er ekki hægt. Ég reyndi að fara í add or remove programs en hann er ekki heldur þar.

Hvað er hægt að gera?