Ég er að fara í próf úr þessum bókum eftir helgi. Vandamálið er að ég er að verða búin að gleyma þessu :S Það er fáránlegt að hafa próf úr bók sem við lásum í febrúar.

Ég vil taka það fram að ég las alla Snorra-Eddu (frábær bók :P) og mestalla Laxdælu (ég les hægt og við áttum að lesa 5 bækur á önninni á mismunandi tungumálum :S) svo ég er ekki ein af þessum sem nenni ekki að lesa og bið um glósur daginn fyrir próf :P

Ég fann reyndar einhverjar glósur úr Laxdælu og á eftir að kíkja betur á google svo þetta er kannski ekkert neyðarástand. Bara ef einhver á fínar glósur úr þessu ;)