Kötturinn þinn er bara kjaftaglaður. Ég átti svona kött og ég bý í blokk, ég varð að gefa hann vegna nágrannanna, þeir þoldu ekki hávaðann. Hann var inniköttur hjá mér og hafði félagsskap af læðunni minni sem mjálmar sjaldan og aldrei hátt, þannig að ég taldi að honum leiddist. Nú á hann heima með 8 stk. af smáhundum og fær að fara út, en hann kjaftar ekkert minna, hann er alveg eins, lætur vita þegar hann fer í kassann, þegar hann er að éta og mjálmar svo líka bara til að mjálma. Mamma hans...