Nú á eg í því vandamáli að kötturinn minn er voða mjálmglaður… Fór með hann í geldingu og hélt að hann myndi róast og kannski halda skoðunum sínum fyrir sjálfan sig…en NEI! Þetta er verulega slæmt þegar maður er að fara í vinnuna kl 8 á morgnana og hann hleypur út með manni öskrandi og tuðandi! Er ég virkilega það slæmur faðir? Það er víst ekkert að honum líkamlega þar sem ég fer með hann reglulega til læknis. Ég skal sætta mig við hárin, ég skal sætta mig við kattarsandinn…en guð minn góður! hversu mikið getur einn köttur tuðað!