Í fyrsta lagi vil ég taka fram að hér munu ekki líðast svör eins og þau sem Bonni sendi frá sér. Hér á þessu áhugamáli móðgum við ekki aðra, tölum ekki illa um fólk eða dýr þess og við segjum ekki neitt niðrandi um hvert annað. Við högum okkur eins og fullorðið fólk. Ef einhver ákveður, eins og Bonni, að fara hina leiðina má sá hinn sami eiga von á tímabundnu banni eða viðvörun.


Í öðrum fréttum. Það er kominn 15. júní fólk! Ætliði ekkert að taka þátt í myndasamkeppninni? Sumir kannski nenni ekki því þeir ekki kunna eða nenna að minnka myndirnar sínar. Þá ætla ég að laga það vandamál! Á þessari síðu: http://www.resize2mail.com/ er hægt að láta minnka myndir fyrir sig, mjög hentugt.

Ef þið viljið nánari upplýsingar um myndasamkeppnina, skoðið fyrri tilkynningu. Frestur rennur út á miðnætti 18. júní.

Kv, yðar stjórnandi og ráðunautur, girlygirl.
Just ask yourself: WWCD!