Ég held að virknin tengist bara því að þetta fólk er yfirleitt það sama og þar sem alltaf eitthvað nýtt er að koma fram í ST þá skrifar það náttúrulega mun meira í þann vettvanginn!
Síðan er líka bara ágætt fyrir þig að velja þér aðrar æfingar fyrir tvíhöfðann, það er nú af nógu að taka þar. Mundu bara að hita vel upp og fáðu einhvern til að leiðbeina þér með æfinguna, því að erfitt er að sjá þetta í gegnum skriftir!
Sælir thgu!! Hvernig væri að þú hugsaðir aðeins um þitt eigið rassgat og láta manneskjuna í friði! Þetta svar þitt sýnir merki um minni þroska en flestir 12 ára krakkar hafa þannig að ég skil ekki hvað er verið að leyfa þér að hanga hérna inni! Hvernig væri að þú snerir þér aftur að því að leira og leyfa fólki að fá að deila vandamálum sínum og fá ráð við þeim!
Meiriháttar að þú getir deilt svona með okkur tilfinningum og lífi þínu, en mér finnst þetta soldið of persónulegt hjá þér að vera að sýna okkur hinum þetta, það er í lagi að tala um hlutina en ekki svona rosalega, þú veist ekki hverjir eru hérna og hversu miklir vinir þeir eru, sumir hafa allt annan tilgang hér en að hjálpa fólki.!
Mér fannst nú að vísu alltaf best að læra eins og ég gat til svona 10 kvöldin fyrir próf og horfa þá bara á sjónvarpið eða gera eitthvað allt annað en að læra og dugði það mér langbest, í staðinn fyrir að vera með eitthvað stress! Hei, aldrei féll ég!
Mér finnst persónuleg best að stinga á blöðrurnar, ná öllum vökva úr þeim og setja síðan eitthvað yfir á þær, skinnið að vísu deyr og þarf maður að kroppa það í burtu eftir nokkra daga! En síðan grær þetta eðlilega!
Svakalega hefur þú mikið að segja um þetta “Hetjan”, hvernig væri að halda bara kjafti og reyna að koma með eitthvað annað heldur en úthúðun á þá sem miðla af því sem þeir vita og fá vitneskju frá öðrum!
Það hefur verið sannað að með því að stunda líkamsrækt þá eykst löngunin í kynlíf og það verður betra, auk þess sem að því meira sem maður stundar kynlíf þá leitar maður meira í aðra líkamsrækt! Þannig að þetta verður smá vítahringur, en af hinu góða!
jamm, það er mælt með að æfa annan hvern dag, c.a. 3 - 4 sinnum í viku og milli 30 - 60 mínútur á dag, ekki lengur. Max-Out prógrammið frá AST er mjög gott, sammála þér með það Geggi, og finnur þú það á www.ast-ss.com!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..