Hvernig er þetta með ykkur strákana? Hvernig hugsið þið? Maður er alltaf að heyra hve auðvelt sé að hræða stráka.
Hvað fernig finnst ykkur þegar stelpa segjist elska ykkur út af lífinu? Mynduð þið frekar vilja heyra að hún væri hrifin af ykkur?
Einnig… hvað er hægt að gefa strák í jólagjöf?
Ég vil helst hafa það eitthvað sérstagt því það er handa sérstakri manneskju. Það má heldur ekki vera of rérstakt því við erum ekki saman ( jafn vel þótt svo að ég myndi vilja óska að svo væri ) en ég er í vandræðum með gjöfina…. HELP ME PLEES!

Ef ég sný mér að öðru þá…. getið þið strákar bara sofið hjá stelpu án þess að þikja eitthvað vænt um hana? Þá er ég ekki að meina one night stand, heldur væri það einhver stelpa sem þið þekktuð. Og þá er ég líka að meina að gera það oftar en einu sinni.

Ég er með svo margar spurningar handa ykkur að ég gæti setið hérna í alla nótt og pikkað þær inn í tölvuna en ég ætla að láta þetta duga í bili og geima hinar um stund.

Kveðja tigeress