Hérna ég var að spá… mig langar svolítið til þess að gefa henni jólagjöf… mér finnst samt að hún eigi ekki að vera of… vegna þess hve stutt við erum komin… en mig langar til þess að gefa henni bókina: Angela´s ashes (Aska Angelu), hún er nefninlega svolítill bókaormur… og ég held að hún myndi fíla hana… en markmið mitt með þessarri grein er að fá aðeins mynd á hlutina!!! Málið er að, eins og flestir vita, þá er ég þessi týpíski, grandalausi karlmaður, og það sem ég, og vonandi fleiri karlmenn, vilja vita er það… Hvað vilja konur manns í jólagjöf frá okkur??? Hvað er það sem þið viljið stelpur??? Allir kallar hafa einhverntímann gefið: náttslopp, sexý undirföt, ilmvatn… og … heimilistæki!!! Engin kona vill fá svoleiðis… btw, en það er bara gjöf sem kemur þegar allt annað þrýtur! Við erum BARA karlmenn!!! Hjálpiði mér og öðrum með því að deila með okkur óskum ykkar….
Hjálparþurfi
Gromit