Sumrin eru æðisleg er það ekki. Maður kynnist nýju fólki, það var einmitt það sem gerðist í sumar. Ég kynntist nýrri manneskju sem er svo æðislega falleg. Hann er fallegasta veran á öllu jarðríkinu. Ég hef kinnst mörgum srtákum en enginn hefur haft sömu áhrif á mig og hann.
Þegar ég sá hann fyrst þá hélt ég að það myndi líða yfir mig ég vissi ekki hvort ég ætti að hlæja eða gráta ég réð mér hreinlega ekki. Og þegar hann opnaði munin og byrjaði að tala… ég hef aldrei heyrt jafn fallega rödd… ó guð hvað hún var sexy!!!
Hann er svo skemmtilegur og findinn að enginn jafnast á við hann.

Ég veit ekki hvað ég á að gera eða hvað er að mér ég get bara ekki hætt að hugsa um hann. Ég hugsa um hann hverja einustu sekuntu og svo þessi endalausi fiðringur í maganum… What is up with that?
Ég held að ég sé að verða já eða orðin ástfangin en ég er nú samt ekki viss því ég hef ekki upplifað þessa tilfinningu áður.
Honum fá engin orð lýst, og það er enganvegin hægt að lýsa fullkomnun hans.
Hvernig hann snertit mig hvernig hann horfir í augu mín hvernih hann lætur hvernig allt sem hann segjir er fullkomið hvernig hann hlær er alveg dásamlegt….

Hvað á ég að gera??????? HHHJJJJJÁÁÁÁÁ´LLLLLPPPPP!!!!!!