Þú gleymdir Arovane;) Nokkuð gott útgáfufyrirtæki, sérstaklega miðað við hvað það er nýtt á nálinni - síðast er ég vissi var þetta bara Thomas Morr kallinn að brellast í stofunni heima hjá sér. Öflugt lið sem hann náði að sanka að sér, og margar góðar plötur, ég á fjórar. Manual er nettur chill-fílingur með ýmis rafhljóð, klikk og klakk trommut og gítar og píanó af og til, Arovane gerir tónlist líka því sem Autechre gerðu á sínum yngri árum, Isan eru með þroskaða, lágværa spiladósatónlist...