Ég er einmitt nýbúinn að fjárfesta í Dell Dimension 4300 vél hjá EJS - og er mjög ánægður. Það heyrist miklu minna í henni en 266 Mhz tölvunni sem ég var með, álíka auðvelt að opna kassann og apple g3-g4 turnana (eitt handtak) og engar skrúpur þarf að nota til að festa kort í henni. Þar að auki var þetta á ágætis verði - 1,7 Ghz, 256 Mb ram og geforce 2 mx skjákort, geislalesari og geislabrennari og netkort, winxp fylgir með og mér til furðu var hljóðkortið sem fylgdi með soundblaster live!...