Ég skil það vel. Eitt sinn átti ég hamstur, og vinur minn átti sinn hamstur sem hann geymdi hjá mér. En hann var orðinn 3ja eða 4ra ára gamall og einu sinn þegar ég kom heim úr skólanum lá hann fara á grúfu, nánast í litla kúlu, og hafði gert í þó nokkurn tíma, því hárin á höfði hans voru alveg slétt. Það þótti mér mjög sorglegt, að deyja lokaður í búri. En ég ætla mér ekki að deyja þannig, og ég vona að þú deyjir ekki heldur eins og gæludýrin þín. Ekki það að ég ráði miklu um hvernig ég dey.