Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða
Notendur
Re: Vinsamleg tilmæli til Hugakverúlanta!
í Half-Life fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Mér finnst þetta góð hugmynd - eitt af því sem vantaði á þessa síðu.
Re: Domu: A child´s dream
í Anime og manga fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Grúví. I did not knew that (eins og guðspjallarmaðurinn sagði).
Re: Autechre - leiðbeiningar
í Raftónlist fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Úpps, þetta var ég, gleymdi að skrá mig :/
Re: Domu: A child´s dream
í Anime og manga fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Teiknimyndirnar eru líka rosalega stórar í Japan - Bíómyndir í topp sætum sem eru mjög vandaðar. Veit ekki - kannski bara vani og/eða önnur viðmið - flestallt í sjónvarpi er nú einu sinni í lit…
Re: Domu: A child´s dream
í Anime og manga fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Góð grein. Hún er ekkert of löng, eða hún heldur áhuga manns í gegnum hana alla;) - Og nei, Domu er svarthvít, eins og flest manga er. Það tekur einfaldlega svo langan tíma að lita að Japanar sleppa því helst til að geta gefið út símaskrá af sögum í hverri viku (já, þær geta orðið það þykkar!). Nema þegar þeir lita fyrstu blaðsíðurnar í heftum eins og til dæmis nýju ensku útgáfunni á Akira og Ghost In The Shell og fleiri sögum.
Re: Domu: A child´s dream
í Anime og manga fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Góð grein. Hún er ekkert of löng, eða hún heldur áhuga manns í gegnum hana alla;) - Og nei, Domu er svarthvít, eins og flest manga er. Það tekur einfaldlega svo langan tíma að lita að Japanar sleppa því helst til að geta gefið út símaskrá af sögum í hverri viku (já, þær geta orðið það þykkar!). Nema þegar þeir lita fyrstu blaðsíðurnar í heftum eins og til dæmis nýju ensku útgáfunni á Akira og Ghost In The Shell og fleiri sögum.
Re: Gagnrýnis re-run
í Raftónlist fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Takk fyrir hjálpina, fólk. Einn gaur sem ég þekki átti svipað Audigy kort og var í sífelldum vandræðum með það - og nú er hann að skipta yfir í Mac G3. Annars fylgdi Sound Blaster Live kort með tlvunni sem ég keypti í febrúar en ég skipti því út fyrir Audigy kortið sem ég fékk í jólagjöf því ég taldi það vera betra. WinXP er á tövlunni svo ég fór á soundblaster.com og sótti nýjustu reklana sem eru frá síðari hluta síðasta árs, en það lætur samt svolítið illa. T.d. virkar Creative valstikan...
Re: Gagnrýnis re-run
í Raftónlist fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Meinarðu þá audio-rásirnar(tracks)? Hef prófað að skipta um rekla - virka misvel: Ég er með Sound Blaster Audig Player(held ég, það er allavega bara kort inn í tölvunni með einu joystick/midi tengi og firewire) Reklarnir eru: ASIO DirectX Driver: Latency 187 ms ASIO DirectX FullDuplex Driver: Latency 43 ms ASIO (eitthvað, næ ekki að opna forritið) Creative Emu Driver: Latency 750 ms Og eftir að hafa kveikt á Cubase heyrast af og til truflanir og bíp úr tölvunni (í hátalara)
Re: Draumurinn
í Tolkien fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Spennandi draumur. Dreymdi þig framhald?
Re: Gagnrýnis re-run
í Raftónlist fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Audio-ið virkar ekkert í þessu bannsetta cubase hjá mér! Urg! VesenVesenVesen! Ég næ þessu líklega í lag bráðum, en þangað til verð ég að halda við eitthvað einfaldara:( Urg!
Re: Ný FF mynd?
í Final Fantasy fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Kíkið á Cucularium - þar sem fjallað er um hitt og þetta sem tengist tónlist og fleiru. ”Yfirbyggingin...
Re: Squaresoft gefur út Andrés Önd
í Final Fantasy fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Það verður áhugavert að heyra hvernig Haley Joel Osmeth (skrifað ég það rétt?) fer með það að tala fyrir aðalpersónuna í þessum leik. Örugglega fínn leikur - enda koma þau við í Nightmare Before Christmas heiminum!
Re: Gagnrýnis re-run
í Raftónlist fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Nei, þeir eru líklega bara að undirbúa einhverja fína síðu fyrir lögin eins og þessa í fyrra. Allavega gat ég sent inn lag áðan. Gæti verið útaf Netscape? Ég nota MSIE6 á Huga - Raftónlistarkeppnissíðan (þar maður sendir inn lög) virkar vel. Þeir sögðu “til” 20. maí sem þýðir yfirleitt “til og með” - eða það finnst mér. Og Roofuz: Music á Playstation er fínt forrit - fullt af sömplum til að nota og gott viðmót:) Ég hef ekki notað það mikið sjálfur, en vinur minn hefur gert slatta af...
Re: Reviews, Allir að lesa!!
í Tölvuleikir fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Er ekki einfaldara að hafa skala frá 1 upp í 10 (eða jafnvel 1-5) frekar en prósentur? Ég meina, er einhver munur á 86% og 87%? Eða 55% og 62%? Það er líka oft ágætt að taka fram kosti og galla - kannski 3 kosti og 3 galla.
Re: Big Bang og annað fjör!
í Geimvísindi fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Það er ekki hægt að segja neitt til um eða uppgötva nokkuð um það sem gerðist á undan Miklahvelli því í honum sjálfum bregðast öll þau lögmál sem við höfum sett saman um heiminn - því getur hvað sem er hafa gerst og við getum aðeins gert okkur persónulega skoðun á því sem við höldum að hafi gerst. Ég er ekki trúaður, en ég get ekki fært rök fyrir því að einhver vera eða verur hafi skapað miklahvell eða heiminn á undan honum ef einhver var. Né heldur get ég sannað að ekkert hafi verið fyrir...
Re: Eru tólin að virka?
í Raftónlist fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Er ekki rosalega gaman að setja einhver fríkí hljóð á midi gítarinn og hamast síðan á strengjunum:D?
Re: Strúktúr, Hljómur, húkkar,Progression, 'Utsetning
í Raftónlist fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Ef maður veit ekkert hvað maður er að gera - getur maður gert allt. Og ef maður fylgir ekki hjarta sínu - getur maður ekki fílað sín eigin lög. Og að sjálfsögðu á ég við hugann, meðvitundina - þína eigin sál - þegar ég tala um hjartað.
Re: Gagnrýnis re-run
í Raftónlist fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Ekki dissa Music á Playstation. Það er grúví stöff.
Re: Er barnið þitt hakkari?
í Netið fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Hvar fannstu þetta? Augljóslega brandari - |||Popular hacker software includes “Comet Cursor”, “Bonzi Buddy” and “Flash”.||| ;) HAHAHAHAHAHAAHAHahahAHAHAHHAHAAA! Silly humans.
Re: númer hvað er best
í Final Fantasy fyrir 23 árum, 11 mánuðum
6 og 8 eru bestir, 7 var góður, en bardagakerfið eyðilagði 9 alveg fyrir mér. Hef ekki klárað 4 og 5, en leist ágætlega á þá. Hlakka mjög til að spila 10, því það er sama lið og gerði 8 - það var annað lið sem gerði 9.
Re: Hugmynd af simsa leik
í The Sims fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Þetta er ágætis hugmynd en mér finnst þeir hjá Maxis ættu frekar að eyða tíma sínum í að þróa Sims Online og Sims 2 (þar sem þeir myndu þá þróa hugmyndina og leikinn sjálfann eitthvað)
Re: Tekken Tag Tournament
í Tölvuleikir fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Í TTT er flöturinn sem maður berst á óendanlegur, eins og hann var í fyrri Tekken leikjunum. Þetta er ástæðan fyrir því að manni finnst bakgrunnurinn snúast í kringum bardagasvæðið, keppendurnir eru alltaf á ca. sama stað miðað við umhverfið þó þeir ,,ferðist“ marga metra á flötinum sjálfum, sem er sjálfsögðu mjög fáránlegt og óraunverulegt en kom ekki að sök í fyrri leikjum því þar voru bakgrunnarnir yfirleitt þannig að svæðið leit út fyrir að vera óendanlegt. En þeir breyttu þessu í Tekken...
Re: Strúktúr, Hljómur, húkkar,Progression, 'Utsetning
í Raftónlist fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Þegar ég er að gera tónlist fer ég algjörlega eftir hjartanu. Ef ég geri það ekki enda ég bara í einhverju rugli og þá er lagið bara dautt. Þó það hafi fallega melódíu sem er kannski grípandi þarf ég oft að byggja það alveg upp á nýtt frá grunni því ég hef verið að rembast við að fá eitthvað ákveðið form eða fíling. Bestu lögin mín koma í almennu flippi, þegar eitthvað örlítið kemur manni af stað við að semja og maður situr spenntur við tölvuna í tvo tíma og þá er maður búinn. Aldrei heyrt...
Re: Eru tólin að virka?
í Raftónlist fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Tæki og tól: tölva modplug tracker sound forge 4,5 reaktor evolution midi hljómborð (með þrem áttundum!) VST-Plugin sömpl af neti og sömpl tekin upp með minidisk-spilara Er að prófa mig áfram í Cubase með Halion, ekkert fullunnið enn.
Re: Sjónvarpsgláp er....................!!!!!!
í Sjónvarpsefni fyrir 23 árum, 11 mánuðum
Flott nick. Mér finnst þetta nú svolítið fáránleg grein, þó ég sé sammála því að það sé óhemjumikið af lélegu sjónvarpsefni til. Fólk ræður að sjálfsögðu hvernig það hagar frítíma sínum. Fólk velur náttúrulega yfirleitt hvort það horfir á það sem er í sjónvarpinu. Og það eru ofsalega margar “mannskemmandi” leiðir til að drepa tímann. En ef við myndum nú hætta öllu þessu kjaftæði sem við erum að eyða tíma okkar í, hvað myndum við þá gera? Myndu allir vera að fræða sjálfa sig um eitthvað allan...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok