Það er á leiðinni jarðskjálftaleikur fyrir Playstation 2 sem ber nafnið ,,Zettai Zetsumei Toshi“ eða ,,Óttaslegin borg” eins og það myndi eiginlega þýða á íslensku. Hann fjallar um ungan fréttamann sem er á ferð í nýja starfið sitt í framtíðarborg rétt fyrir utan strendur Tókíó og nema hvað, þegar hann er nýkominn skellur á jarðskjálfti og allt fer í rúst. Síðan gengur leikurinn út á að komast heill aftur á meginlandið. Það er hinsvegar hægara sagt en gert - maður þarf að huga að því að...